Tónlist

Trentemöller spilar á Sónar-hátíð

Freyr Bjarnason skrifar
Trentemöller spilar á sónar-hátíðinni um miðjan febrúar.
Trentemöller spilar á sónar-hátíðinni um miðjan febrúar.
Hinn vinsæli danski raftónlistarmaður og plötusnúður Trentemöller spilar á Sónar-hátíðinni í Hörpu um miðjan febrúar.

Trentemöller hefur á ferli sínum endurhljóðblandað lög fyrir Moby, Pet Shop Boys og The Knife með góðum árangri. Hann hefur gefið út tvær plötur og kom sú síðasta, Into the Great Wide Yonder, út fyrir þremur árum. Trentemöller hefur nokkrum sinnum áður sótt Ísland heim og m.a. spilað á Airwaves-hátíðinni.

Enska elektrósveitin LFO spilar einnig á Sónar. Hún er á mála hjá útgáfunni Warp og hefur verið starfrækt í áratug. Hljómsveitin gerði eitt sinn endurhljóðblandaða útgáfu af lagi Bjarkar, Hyperballad.

Endanleg dagskrá Sónar-hátíðarinnar er þar með tilbúin. James Blake, Squarepusher, Modeselektor, Kasper Björke, Pachanga Boys, Ásgeir Trausti, Mugison, Gus Gus og Retro Stefson koma einnig fram á hátíðinni ásamt fjölda annarra flytjenda.

Samtals koma fimmtíu listamenn fram í Hörpu 15. og 16. febrúar. Dagskráin hefst báða dagana klukkan 18 og stendur yfir til þrjú um nóttina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×