Evrusvæðið réttir úr kútnum Össur Skarphéðinsson skrifar 21. janúar 2013 06:00 Fjárfestar eru á ný að öðlast traust á evrusvæðinu. Nýleg könnun meðal tæplega átta hundruð fjárfesta sýndi að þeir telja nú evrusvæðið komið yfir það versta í efnahagserfiðleikum sínum. Það er í samræmi við æ fleiri teikn um að evrusvæðið sé að rétta úr kútnum. Skammtímatölur eru allar í rétta átt. Í upphafi árs lýsti Christine Lagarde, forstjóri AGS, því yfir að Portúgal væri komið á beinu brautina. Írland er á jákvæðri leið sem allir þekkja. Á Ítalíu er bankakerfið á mun traustari grunni en menn töldu. Traust forysta Marios Monti, fráfarandi forsætisráðherra, hefur komið fjötri á skuldir ítalska ríkisins. Þó hafa mest kaflaskil orðið í Grikklandsfárinu, sem misserum saman var notað til að spá kafsiglingu evrunnar. Annað varð uppi. Föst viðspyrna Grikkja með einbeittri liðsemd Evrópusambandsins leiddi til að fyrir skömmu hækkuðu matsfyrirtæki lánshæfismat Grikklands um heila sex flokka. Nýjasta hagspá Evrópusambandsins undirstrikar þetta með því að spá efnahagsbata á þessu og næsta ári. Duttu svo dauðar lýs úr hári margra þegar Morgunblaðið birti frétt um að nú sæi fyrir endann á erfiðleikum evrusvæðisins. Blaðið hefur þó með aðdáunarverðri reglusemi spáð yfirvofandi andláti evrunnar – ef ekki í þessari viku, þá örugglega hinni næstu.Evran hefur styrkst Í kjölfar alþjóðlegu fjármálakreppunnar, sem náði hámarki haustið 2008, stigu aðildarríki Evrópusambandsins harða glímu við margvíslega erfiðleika. Þá mátti að nokkru rekja til inngróinna veikleika í reglu- og stofnanaumgjörð evrusvæðisins. Duldist þó fáum að stór hluti vandans lá í langvarandi agaleysi í opinberum fjármálum ýmissa evruríkja. Evrusvæðið hefur því fyrst og fremst glímt við ríkisfjármála- og bankakreppu í sumum aðildarríkjum. En evruríkin eiga hins vegar ekki við gjaldeyris- eða gjaldmiðilskreppu að stríða. Þannig hefur evran sem gjaldmiðill haldið styrk sínum á alþjóðlegum gjaldeyrismörkuðum frá því fjármálakreppan skall á og löngu fyrr. Í lok ágúst síðastliðins, löngu eftir að kreppan hófst, var gengi hennar 6,5% hærra en gengi Bandaríkjadals. Það er verulega hærra en þau 4% sem evran hefur að meðaltali verið sterkari en Bandaríkjadalur frá því hún kom í heiminn árið 1999. Frá upphafi evrusamstarfsins hefur Seðlabanka Evrópu jafnframt tekist í meginatriðum að halda verðbólgumarkmiði sínu. Greiðslukerfi evrunnar hefur jafnan verið traust og engin fjármagnshöft þurft á viðskipti með evrur frá því að fjármálakreppan skall á.Aðgerðir ESB Í kjölfar fjármálakreppunnar hafa aðildarríki Evrópusambandsins, framkvæmdastjórnin og Seðlabanki Evrópu gripið til margvíslegra aðgerða til að treysta regluverk sitt og styðja umgjörð efnahagsmála. Þannig hefur nú verið búið um eftirlit með fjárlagagerð aðildarríkjanna með hætti sem dregur úr líkum á því að ríkin samþykki óábyrg fjárlög. Þar er þó í engu tekið vald af þjóðþingum aðildarríkjanna, sem munu taka lokaákvörðun um fjárlögin eins og verið hefur. Samhliða hafa verið samþykktar reglugerðir sem treysta eftirlit með opinberum fjármálum og fela í sér að viðurlögum verði beitt ef viðmið í ríkisfjármálum verða ekki virt. Evruríkin hafa auk þess samþykkt þrenns konar sáttmála sem eiga að stuðla að aga í ríkisfjármálum, efla samkeppnishæfni og auka hagvöxt, fjárfestingar og atvinnu. Jafnframt hefur verið komið á varanlegum stöðugleikasjóði, ESM, sem hefur það hlutverk að veita lán til ríkja í efnahagserfiðleikum. Sá sjóður fær heimild til að lána bönkum á evrusvæðinu beint, án þess að fara gegnum fjárlög viðkomandi ríkja. Þannig hækka ríkisskuldir ekki við lánveitingar til banka úr sjóðnum, og því ristur upp sá vítahringur sem lán aðildarríkjanna til bankakerfisins settu áður skuldastöðu viðkomandi ríkja í. Síðast en ekki síst náðist samkomulag í desember síðastliðnum um stofnun sameiginlegs bankaeftirlits á evrusvæðinu. Hið sameiginlega eftirlit verður framkvæmt af Seðlabanka Evrópu og mun ná til stærstu banka evrusvæðisins. Eftirlitið er liður í stofnun sérstaks bankabandalags, en það mun auk þess fela í sér sameiginlegt regluverk um skilanefndir og uppgjör gjaldþrota og sameiginlegan innstæðutryggingasjóð.Vöxtur og jákvæð teikn Þessar einbeittu aðgerðir eru þegar farnar að hafa jákvæð áhrif. Í nýjustu hagspá Evrópusambandsins kemur fram að landsframleiðsla á evrusvæðinu muni aukast um 1,4% á næsta ári. Þar er um talsverðan viðsnúning að ræða frá síðasta ári, þegar landsframleiðslan á evrusvæðinu dróst saman um 0,4%. Spáin telur að hagvöxtur verði jákvæður í öllum evruríkjunum á næsta ári, nema Kýpur. Hún greinir frá því að eftirspurn sé þegar farin að aukast, samkeppnisstaða fyrirtækja hafi styrkst og útflutningur fari vaxandi, samhliða auknum alþjóðaviðskiptum. Þá hafi dregið úr efnahagslegu ójafnvægi og fjármálakerfið búi við meiri stöðugleika og minni óvissu en áður. Skýr afleiðing þessarar jákvæðu þróunar hefur birst í því að skuldatryggingaálag flestra evruríkja hefur lækkað verulega að undanförnu. Þegar matsfyrirtækið Standard & Poor?s hækkaði lánshæfismat Grikklands um heila sex flokka í desember síðastliðnum fylgdi með því að hækkunin væri til vitnis um góðan árangur grískra stjórnvalda við að innleiða nauðsynlegar efnahagsumbætur, sem og endurnýjað traust fjárfesta til evrusvæðisins.Staða Íslands Með umsókn sinni um aðild að Evrópusambandinu og upptöku evru er því langt í frá að Ísland væri á leið í ?brennandi hús?. Þvert á móti hefur þátttaka Íslands í Efnahags- og myntbandalagi Evrópu með sameiginlegum gjaldmiðli aldrei verið brýnni en nú. Hún færir okkur aga, eftirlit og stuðning við hagstjórn sem við þurfum sárlega á að halda. Um leið fæst stöðugleiki í peningamálum, sem ætíð hefur skort hér á landi. Þátttaka í myntbandalagi með sameiginlegum gjaldmiðli mun þar að auki færa með sér umtalsverðan efnahagslegan ávinning í formi lægri vaxta, lægra verðlags og minni verðbólgu. Reynsla annarra smáþjóða sýnir að um leið munu fjárfestingar aukast samfara auknum útflutningi og hagvexti. Hafi erfiðleikar á evrusvæðinu einhvern tíma verið rök gegn umsókn um aðild að Evrópusambandinu eru þau rök haldlaus í dag. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Össur Skarphéðinsson Mest lesið Hagfræðin á Heimildinni Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Norskir herrar eða íslenskir? Þóra Bergný Guðmundsdóttir Skoðun Heimilisleysi blasir við öryrkjum Svanberg Hreinsson Skoðun Að mæðra barn í hjarta sínu Hólmfríður Anna Baldursdóttir Skoðun Heimildin sem hvarf úr frumvarpi matvælaráðherra Vala Árnadóttir Skoðun Öll með? – 4.020 kr. hækkun fyrir skatt eftir 16 mánuði! Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Við styðjum Guðmund Karl! Katrín Valdís Hjartardóttir,Andrea Bóel Bæringsdóttir,Guðbjörg Harpa Ingimundardóttir Skoðun Hvers vegna Halla Tómasdóttir? Guðjón Sigurðsson Skoðun Af hverju ertu að bjóða þig fram? Sigurður Ragnarsson Skoðun Góður forseti G. Pétur Matthíasson Skoðun Skoðun Skoðun Góður forseti G. Pétur Matthíasson skrifar Skoðun Hvers vegna Halla Tómasdóttir? Guðjón Sigurðsson skrifar Skoðun Heimildin sem hvarf úr frumvarpi matvælaráðherra Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Sníða sér stakk eftir vexti Guðni Magnús Ingvason skrifar Skoðun Norskir herrar eða íslenskir? Þóra Bergný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju ertu að bjóða þig fram? Sigurður Ragnarsson skrifar Skoðun Við styðjum Guðmund Karl! Katrín Valdís Hjartardóttir,Andrea Bóel Bæringsdóttir,Guðbjörg Harpa Ingimundardóttir skrifar Skoðun Hagfræðin á Heimildinni Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hreinleikaþráin Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Heimilisleysi blasir við öryrkjum Svanberg Hreinsson skrifar Skoðun Hvað getur Ísland gefið öðrum þjóðum? Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Veðrið, veskið og Íslendingurinn María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Að mæðra barn í hjarta sínu Hólmfríður Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Jákvæður orðaforði eykur hamingju og vellíðan Helga Fjóla Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Öll með? – 4.020 kr. hækkun fyrir skatt eftir 16 mánuði! Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Látum hjartað ráða för Sigrún Traustadóttir skrifar Skoðun Vekjum risann Guðmundur Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Katrín Jakobsdóttir forseti Viðar Pálsson skrifar Skoðun Þjóðarsátt líka fyrir fatlað fólk Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Í ker eða kistu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Gummi Kalli er rétti kosturinn sem biskup Íslands Áslaug Helga Hálfdánardóttir,Dís Gylfadóttir,Guðni Már Harðarson skrifar Skoðun Gummi Kalli, einlægur, skemmtilegur og frábær leiðtogi Arnar Ragnarsson skrifar Skoðun Ræstingafyrirtæki og starfsmannaleigur í jafnréttisparadísinni Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Forysta til framtíðar Hópur presta skrifar Skoðun Fyrir hverja eru skoðanakannanir? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Án varna, ekkert frelsi Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Mýtan um launin Elsa Nore skrifar Skoðun Samt kýs ég Katrínu Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Viltu vera memm? Birna Dröfn Birgisdóttir skrifar Skoðun Tíminn að renna út Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Sjá meira
Við styðjum Guðmund Karl! Katrín Valdís Hjartardóttir,Andrea Bóel Bæringsdóttir,Guðbjörg Harpa Ingimundardóttir Skoðun
Skoðun Við styðjum Guðmund Karl! Katrín Valdís Hjartardóttir,Andrea Bóel Bæringsdóttir,Guðbjörg Harpa Ingimundardóttir skrifar
Skoðun Gummi Kalli er rétti kosturinn sem biskup Íslands Áslaug Helga Hálfdánardóttir,Dís Gylfadóttir,Guðni Már Harðarson skrifar
Við styðjum Guðmund Karl! Katrín Valdís Hjartardóttir,Andrea Bóel Bæringsdóttir,Guðbjörg Harpa Ingimundardóttir Skoðun