Innlent

Læknir Stokkseyrarfórnarlambsins: "Honum hafa verið veittir þessir áverkar“

Fanney Birna Jónsdóttir og Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Læknirinn sem tók á móti öðrum mannanna sem misþyrmt var í Stokkseyrarmálinu segir áverka hans hafa verið óvenjulega. Læknirinn gaf skýrslu í Héraðsdómi Reykjavíkur nú fyrir skömmu.

„Hann kemur með föður sínum seint að kvöldi á slysadeild og ég skoða hann þá, segir læknirinn, sem fannst saga mannsins í fyrstu með ólíkindum. „Ég vissi ekki hvort ég ætti að trúa henni, en hann breytti henni aldrei og hélt sig við hana allan tímann.“

Læknirinn segir að maðurinn hafi verið fámáll og að það hafi þurft að toga upp úr honum upplýsingar. „Ég hélt þetta væri eiturlyfjatengt, en hann bað aldrei um neitt,“ segir læknirinn, og vísar þá væntanlega til verkjalyfja.

„Þetta voru óvenjulegir áverkar. Hann var meiddur í andliti, marinn á eyra, meiddur á vör. Ég hef aldrei séð svona áður. Hann var saumaður saman. Það var illa gert og gapti allt, sárið orðið dálítið sortið eins og það verður eftir nokkra daga, og hann var settur á sýklalyf.“

Sakborningarnir á fyrsta degi aðalmeðferðar.mynd/gva
Minnti á áverka eftir hýðingar

Læknirinn segir mestu áverkana hafa verið ofarlega á líkama mannsins, töluverða áverka hafa verið aftan á bakinu, og langar rákir „líkt og hann hafi verið rifinn, eða öllu heldur laminn með staf eða einhverri harðri línu. Minnir á þá áverka sem maður sér á föngum sem í refsingarskyni hafa verið hýddir. Maður sér þetta á internetinu, ég hef aldrei séð svona. Þessir áverkar líkjast ekki því sem ég hef séð af slysförum, honum hafa verið veittir þessir áverkar.“

Læknirinn segist hafa talið að maðurinn hefði rakað kynfærahár sín, en sjálfur fullyrðir maðurinn að rakspíra hafi verið hellt yfir klof sitt og kveikt í. „Ég sá ekkert óvenjulegt þarna, get ekki staðfest hvort það var búið að kveikja í. Hann segist ekki hafa rakað sig.“

Aðspurður hvort hann hefði séð merki þess að kveikt hefði verið einhvers staðar í manninum segir læknirinn að hann hafi ekki getað merkt það á sínum tíma. „Fyrsta stigs bruni er bara roði sem fer fljótt. Annars stigs bruni er með blöðrum, og ég sá engin blöðrumerki. Á upphandleggnum var blóð í húðinni milli laga yfirhúðar og undirhúðar. Gæti eins hafa verið eftir högg, núning eða uppásnúning.

Einu merki um barsmíðar fyrir neðan mitti voru að sögn læknisins aftan á öðrum kálfanum. Blettur þar gæti stemmt við fullyrðingar mannsins um að hann hafi verið laminn fast með kylfu. Þá hafi verið mikil merki barsmíða á höfði mannsins og heilmikið mar á upphandlegg.

Trúir því að áverkarnir séu eftir barsmíðar

Læknirinn segir manninn hafa verið með brotna tönn og sprungu á vör. „Þetta var saumað saman, ekki með góðu hreinlæti. En það þýðir ekki annað en að loka bara framhlutanum og láta afturhlutann vera opinn. Sýklalyf koma manninum til bjargar.“

Dómari spurði lækninn hvort hann teldi að áverkarnir væru eftir langvarandi barsmíðar með hnefum og verkfærum. „Mér finnst það. Þetta er ekki samrýmanlegt neinu því slysi sem ég hef séð. Þetta eru þannig áverkar að ég trúi því.“

Læknirinn segir að áverkar á höndum mannsins gætu verið sjálfsvarnaráverkar. „Ég veit ekki hvort hann hefur slegið. Það voru mörg smásár á höndunum og svo stærri blæðingar undir húð líka.“

Mikið af lyfjum í þvagi

Þá sagði læknirinn að maðurinn hefði kvartað ennþá undan verkjum í eyra viku eftir árásina. „Blæðing á húð sem er föst niður á brjósk er mjög sársaukafull.“ Læknirinn sagðist þó ekki vita hvort það gæti samræmst því þegar stigið er ofan á höfuð og snúið.

„Það er erfitt að segja til um hvernig þetta er gert allt saman. Maðurinn er að mínu viti lúbarinn. Það sem er sérstakt eru þessir hýðingaráverkar niður eftir baki.“

Sjálfur segir maðurinn að árásarmennirnir hafi dælt í sig lyfjum. Í þvagi hans fannst meðal annars kannabis, kókaín, amfetamín, ópíöt, bensódíasipín, MDMA og bensódíazepín.

„Við mældum hjá honum í þvagi, og það voru fullt af lyfjum þar. Maðurinn sagðist ekki hafa verið í neyslu og faðir hans staðfesti það. Mér datt í hug að þetta væri maður sem væri með allt niður um sig og hefði lent í fíkniefnaneyslu. Sá grunur minn reyndist algerlega á röngum forsendum reistur.“


Tengdar fréttir

Ákærðu fá ekki að vera viðstaddir vitnaleiðslur

Fyrirtaka í Stokkseyramálinu svokallaða fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt fyrir hádegi í dag. Þar var tekist á um hvort sakborningum í málinu verði gert að víkja úr dómsal meðan á vitnaleiðslum stendur. Aðalmeðferð í málinu hefst á mánudag og standa yfir í þrjá daga.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×