Tíska og hönnun

Íslensk hönnun heillar

Barbara Russ, penni hjá þýsku hönnunar- og tískuvefsíðunni Modabot.de, var stödd hér á landi í síðustu viku, en tilgangur heimsóknarinnar var að fylgjast með bæði HönnunarMars og Reykjavík Fashion Festival. Russ hafði í nógu að snúast við að hlaupa á milli sýninga, opnana og fyrirlestra um íslenska hönnun.

Sýningin Framed höfðaði til tísku- og hönnunarsíðunnar Modabot.de.
Á miðvikudaginn birti hún svo nokkuð ítarlega færslu um hápunkta hátíðarinnar og þá hönnuði sem höfðuðu mest til hennar. JÖR by GUÐMUNDUR JÖRUNDSSON, Andersen & Lauth og Huginn Muninn voru fremst í flokki en einnig nefnir hún sýninguna FRAMED, sem var samstarf milli ýmissa hönnunardúóa, skartgripi Erlings Jóhannessonar og ullarvörur Víkur Prjósdóttur. Russ segir hönnunarsenuna á Íslandi vera einstaka.

Barbara heillaðist af línu Guðmundar Jörundssonar.
Það er hægt að fullyrða að RFF og Hönnunarmars hafi aldrei tekist betur en í ár, en þetta er í fyrsta skipti sem hönnunarhátíðarnar eru settar undir sama hatt. Pistlar og greinar erlendra blaðamanna sem voru viðstaddir hafa verið af mjög jákvæðum toga og greinilegt er að hönnunarsenan á Íslandi er á hraðri uppleið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×