Tíska og hönnun

Ný fatalína 66°norður og Munda frumsýnd á RFF

Ellý Ármanns skrifar
66°norður og fatahönnuðurinn Mundi kynna „Snow Blind", nýja fatalínu sem frumsýnd verður á Reykjavík Fashion Festival eða RFF. Þessi nýja fatalína tvinnar saman hugarheim Munda og tækniþekkingu 66°norður. Afrakstur samstarfsins er útivistarfatnaður sem er engu öðru líkur en viðeigandi við öll tækifæri.

Snow Blind - ný fatalína Munda verður frumsýnd á RFF.
Snið, mynstur og litir eru afkvæmi undirvitundar Munda og unnin undir áhrifum frá hugmyndum hans um heiminn eftir heimsendi. Einnig er unnið með nokkra af vinsælustu stílgerðum 66°norður sem Mundi gefur nýtt útlit með framúrstefnulegum mynstrum. Útfærslan byggir á áratuga reynslu og þekkingu 66°norður við hönnun á fatnaði fyrir krefjandi aðstæður. Engu er til sparað hvað varðar efnisval og má nefna að einangrunin í jökkunum er úr Primaloft efninu sem gerir flíkurnar mjög hlýjar en um leið mjög léttar og efni í nokkrum flíkum hrinda frá sér vatni og vindum.

Mundi fatahönnuður.
Framúrstefnuleg fatalína

Fatalínan er framúrstefnuleg og samanstendur af hlýjum einangrandi jökkum, peysum og buxum. Einnig fylgihlutum eins og vettlingum, húfum og töskum. „Það er skemmtilegur og öðruvísi framtíðar- og hátækniblær yfir línunni og gott dæmi um það eru sjálflýsandi rennilásar sem eru á nokkrum flíkum sem við höfum verið að leika okkur með", segir Mundi, sem hefur á skömmum tíma skipað sér á stall sem einn fremsti fatahönnuður landsins. Mundi er þekktur fyrir að fara sínar eigin leiðir í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur. 66°NORÐUR var stofnað árið 1926 og er elsti framleiðandi útivistarfatnaðar á Íslandi. Frá því félagið hóf framleiðslu á sjófatnaði fyrir 86 árum hefur það lagt mikla áherslu á gæði og bestu aðferðir sem völ er á hverju sinni.

„Snow Blind" línan verður frumsýnd á RFF 16. mars og er væntanleg í verslanir næsta haust. Nánari upplýsingar um 66°norður og Munda má finna á www.66north.is og www.mundivondi.net.

RFF.IS

RFF





Fleiri fréttir

Sjá meira


×