Tæplega 26.000 innflytjendur á Íslandi 19. mars 2013 09:08
Um síðustu áramót voru 25.926 innflytjendur á Íslandi eða 8,1% mannfjöldans. Það er lítilsháttar fjölgun frá því í fyrra þegar þeir voru 8,0% landsmanna eða 25.442 talsins. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að annarri kynslóð innflytjenda fjölgaði nokkuð á milli ára, voru 2.876 í fyrra en 3.204 nú. Samanlagt var fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 9,1% af mannfjöldanum, en það er einnig lítilsháttar fjölgun frá því í fyrra þegar hlutfallið var 8,9%. Einstaklingum með erlendan bakgrunn, öðrum en innflytjendum, fjölgaði einnig lítillega milli ára, voru 6,2% mannfjöldans í fyrra en 6,4% nú. Innflytjandi er einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra sem einnig eru fæddir erlendis, svo og báðir afar hans og báðar ömmur. Önnur kynslóð innflytjenda eru einstaklingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga foreldra sem báðir eru innflytjendur. Fólk er talið hafa erlendan bakgrunn ef annað foreldrið er erlent. Eins og síðustu ár eru Pólverjar langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. Hinn 1. janúar síðastliðinn var 9.371 einstaklingur upprunninn frá Póllandi eða 36,1% allra innflytjenda. Pólskir karlar voru 39,8% allra karlkyns innflytjenda eða 4.909 af 12.339. Pólskar konur voru 32,8% kvenkyns innflytjenda. Næstfjölmennasti hópur innflytjenda er frá Litháen, 5,4%, en 5,3% frá Filippseyjum. Hinn 1. janúar síðastliðinn bjuggu 19.486 fyrstu og annarrar kynslóðar innflytjendur á höfuðborgarsvæðinu, 66,9% allra innflytjenda á landinu. Hlutfall innflytjenda af mannfjölda var hæst á Vestfjörðum, en þar eru 12,7% innflytjendur af fyrstu eða annarri kynslóð. Næsthæst er hlutfallið á Suðurnesjum þar sem 12,3% mannfjöldans eru innflytjendur eða börn þeirra. Lægst er hlutfallið á Norðurlandi vestra, en þar eru um 4,3% mannfjöldans innflytjendur eða börn þeirra.
Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Sjá meira