Lífið

Skapandi ský á Adobe-ráðstefnu

Ellý Ármanns skrifar
Alþjóðlega hugbúnaðarfyrirtækið Adobe hefur endurnýjað samstarf sitt við Advania sem umboðsaðila fyrirtækisins á Íslandi. Af því tilefni bauð Adobe bauð grafískum hönnuðum og fagfólki í vídeóvinnslu til ráðstefnu hjá Advania í dag undir yfirskriftinni „Skapandi ský".

Að ráðstefnu lokinni var tæplega 400 ráðstefnugestum og öðrum viðskiptavinum Advania boðið til tónleika Jónasar Sigurðssonar og hljómsveitar í nýrri verslun fyrirtækisins við Guðrúnartún.

Í meðfylgjandi myndasafni má skoða fleiri myndir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×