Tíska og hönnun

Erlendir sérfræðingar koma að uppsetningu RFF

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Reykjavík Fashion Festival hefur fengið teymi erlendra sérfræðinga til að hjálpa til við uppsetningu hátíðarinnar í Hörpu þetta árið. Um er að ræða þýska fyrirtækið Atelier Kontrast sem hefur sérshæft sig í listrænni stjórnun lista –og tískuviðburða síðustu 12 árin. Ruediger Glatz, einn liðsmanna Atelier Kontrast kom á RFF síðastliðin tvö ár og fékk birtar myndir af sýningarpöllunum í Þýska Vogue.

Í ár munu Wolfram Glatz og Valentin Lüdicke stjórna uppsetningu tískusýninganna með það að sjónarmiði að hver og einn hönnuður fái að njóta sín sem allra best. RFF teymið er hæstánægt með samstarfið, enda hafa þessir menn mikla reynslu innan bransans og ómetanlegt að fá þeira sýn á gang mála.

Frá einu af fjölmörgum verkefnum sem Atelier Kontrast.
Glatz segist vera heillaður af íslenskri tísku. ,,Mér finnst ótrúlegt hversu marga góða fatahönnuði er að finna á Íslandi. Framboð íslenskrar hönnunar í búðum bæjarins er mjög eftirtektarvert og augljóst að hér er fókusinn frekar á fallegri hönnun heldur en að eltast við nýjustu tískustrauma. Samstarfið í kringum RFF hefur gengið mjög vel og þetta er skapandi og skemtilegt fyrir báða aðila ", segir Wolfram Glatz.

Wolfram Glatz og Valentin Lüdicke.
RFF





Fleiri fréttir

Sjá meira


×