Tíska og hönnun

Sjáðu muninn - falleg kvöldförðun

Myndir/Lífið
Sjáðu á meðfylgjandi myndum hvernig hægt er að útfæra fallega kvöldförðun. Sólveig Birna Gísladóttir förðunarmeistari hjá Airbrush & Make Up School sýnir á auðveldan máta hvernig farið er að þessu.

Sjáðu í meðfylgjandi albúmi endanlega útkomu þar sem kinnaliturinn og varaliturinn koma einnig við sögu.

Steinunn Margrét fyrirsæta óförðuð áður en lagt er af stað í kvöldförðunina.
Hér er settur ljós grunnur og jafnaður út með koparlit og svörtum augnskugga. Jafnaður út á augnlokið í globus-línu.
Endurtekur sama liti undir augað. Mikilvægt er að setja augnskuggann þétt upp við augnhárin. Sjáið hvað augað stækkar.
Eyelinerinn má vera mikill og ýktur því hann rammar inn augun. Hér notar Sólveig svartan eyeliner.
Gerviaugnahárin gera mjög mikið og sama má segja um maskarann sem þykkir og lengir augnahárin.
Sjáið muninn!





Fleiri fréttir

Sjá meira


×