Erlent

Breivik fær fjölda ástarbréfa

Anders Behring Breivik
Anders Behring Breivik
Hryðjuverkamaðurinn Anders Behring Breivik hefur fengið ástarbréf og stuðningsyfirlýsingar í fangelsið þar sem hann dvelur. Hann hefur sýnt sálfræðingi sínum nokkur þeirra.

Terje Törrissen skrifaði niður hluta af bréfunum sem hann sá og sagði fyrir rétti í Ósló í gær að um væri að ræða hreinar stuðningsyfirlýsingar. Hann lýsti jafnframt ástarbréfum frá sextán ára stúlkum, tilboðum um giftingu og sitthvað fleira.

Breivik hefur að sögn sálfræðinga reynt að svara öllum en magnið af bréfum er svo mikið að hann kemst ekki yfir það. Hann fær einnig mjög mikið af haturspósti og jafnvel líflátshótunum.- þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×