Samstarf

Glamúr, glimmer og skærir litir

Mæðgurnar Elísabet Guðmundsdóttir og Guðfinna Helga Þórðardóttir eru nýir eigendur Bianco í Kringlunni.
Mæðgurnar Elísabet Guðmundsdóttir og Guðfinna Helga Þórðardóttir eru nýir eigendur Bianco í Kringlunni. myndir/valli
Mæðgurnar Elísabet Guðmundsdóttir og Guðfinna Helga Þórðardóttir eru nýir eigendur skóbúðarinnar Bianco í Kringlunni.

„Við erum á sama stað og áður en erum búnar að gera búðina algjörlega upp og breyttum henni mikið. Við erum komnar með nýjar vörur og ætlum að vera með mikið flæði í búðinni. Svo fáum við nýjar vörur á tveggja vikna fresti þannig að það verða alltaf einhverjar nýjungar," segir Elísabet.

Bianco býður nú ekki einungis upp á skó heldur einnig töskur, skart og aðra fylgihluti. „Við erum með mikið úrval af skartgripum og töskum og alls kyns aðra fylgihluti svo sem naglalökk og fleira. Svo viljum við leggja áherslu á að Bianco er líka búð fyrir herra. Við erum með fallega herralínu og miðum alls ekki að einhverjum ákveðnum hópi. Hér ættu bæði karlmenn og konur á öllum aldri að geta fengið skó við sitt hæfi á sanngjörnu verði."

Elísabet segir sumarið í skótískunni verða litríkt. „Það verða glamúrhælaskór og sumarsandalar og allt þar á milli. Háir hælar eru inni og fylltu hælarnir eru enn í gangi. Litirnir verða meðal annars skærir: bleikir, myntugrænir og bláir. Tískan verður mjög fjölbreytt og nánast allt í gangi."

Elísabet hefur lengi unnið hjá Bianco og þekkir verslunarkeðjuna því vel. Þær mæðgur fóru til Danmerkur í skoðunarleiðangur þar sem þær litu á aðrar Bianco-verslanir áður en þær réðust í endurbæturnar á búðinni í Kringlunni. „Bianco er stór keðja verslana og því mikið að gerast og alltaf einhver þemu í gangi. Nú erum við að fara af stað með partýþema og verða ýmis skemmtilegheit í kringum það," segir Elísabet. Hún segir þær mæðgur fyrst og fremst leggja áherslu á góðar vörur, sanngjarnt verð, góðan anda og góða þjónustu."





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×