Tíska og hönnun

Arkitektúr, útihúsgögn og erlendir gestir

Fyrirmyndarborg í Ráðhúsinu.
Fyrirmyndarborg í Ráðhúsinu.
Úr fjölmörgum viðburðum er að velja á HönnunarMars. Hér fylgir yfirlit yfir nokkra þeirra en nánari upplýsingar um þessa viðburði og alla hina er að finna á heimasíðunni honnunarmars.is.

Í Ráðhúsi Reykjavíkur verður reist Fyrirmyndarborg en það er Arkitektafélag Íslands sem stendur fyrir þeirri uppákomu.

„Fjölskyldur og börn geta fengið úthlutað lóð í skipulagi sem verður komið fyrir á gólfi Ráðhússins, þar byggja þau hús, torg og garða," segir á heimasíðu HönnunarMars.

Borðið Góa eftir Erlu Sólveigu.




Hönnunarsafn Íslands tekur að sjálfsögðu þátt í HönnunarMars og kynnir samstarfsverkefni safnsins og Erlu Sólveigar Óskarsdóttur húsgagnahönnuðar.

„Safnið fór þess á leit við Erlu að hún hannaði létt borð fyrir gesti safnsins sem nota mætti bæði úti og inni. Góa er úr áli og er eina íslenska borðið á markaði sem hentar utandyra."

HönnunarMarsipan.




Matarhönnun ýmiss konar skipar sinn sess á hátíðinni. HönnunarMarsipan snýr aftur og verður hægt að festa kaup á því í Kiosk á Laugavegi 65.

Þá er á hátíðinni meðal annars fyrirlestur matarhönnuðarins Marije Vogelsang á fyrirlestrardegi í Gamla bíói.



Íslensk hönnun er í aðalhlutverki á HönnunarMars, en í fyrsta skipti í ár sækja erlendir gestir hátíðina heim. Finnska Popup-verslun Design Forum verður starfrækt í Netagerðinni næstu þrjá daga. Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar, segir það ánægjulega nýbreytni:

„Við viljum fá erlenda hönnuði á hátíðina."

Meðal hönnuða sem taka þátt í hátíðinni eru Sigga Heimis iðnhönnuður og Tinna Gunnarsdóttir. Sigga sýnir ný húsgögn og nytjahluti, innblásna af hafinu og fortíðinni, sem framleiddir eru á Íslandi en á sama stað sýna Anna María og David Sandahl skartgripi.

Sýning með verkum Tinnu Gunnarsdóttur verður svo opnuð í Listasafni Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×