Lífið

Gjörbreytt Linda P

Myndir/Linda
"Þetta er dáltið öðruvísi en vanalega en mér finnst gaman að breyta til,"svarar Linda Pétursdóttir spurð út í myndirnar sem voru teknar af henni í gær þegar hún sat fyrir í myndatöku stórglæsileg að vanda með dökkt hár.
"Við vorum að mynda fyrir janúar auglýsingaherferð Baðhússins sem ber yfirskriftina "Nýtt upphaf-Ný framtíð". Ég leitaði til Austurlanda fjær þaðan sem ég fékk upphaflega hugmyndina af Baðhúsinu en við förum einmitt inn í tuttugasta starfsárið í byrjun næsta árs," segir Linda sem er orðin dökkhærð gyðja svo vægt sé til orða tekið.
Ásta Kristjánsdóttir ljósmyndari, stílisti Sara María Forynja, förðun Ásdís Gunnarsdóttir, hár Tinna Ingimarsdóttir og þessi fallegi Kimono sem Linda klæðist er í eigu Filippíu Elísdóttur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×