Lífið

Systur hanna snilldar skartgripalínu

Myndir/Arnor Halldorsson
Meðfylgjandi myndir voru teknar í GK tískuversluninni á Laugavegi á föstudagkvöldið þegar Twin Within – Creative Jewelry, sem er samstarf systranna Áslaugar Írisar og Kristínar Maríellu Friðjónsdætra, frumsýndu skartgripalínuna sína sem er seld í umræddri verslun.

City Collection er fyrsta skartgripalína systranna. Hún er innblásin af grófum efnum sem tilheyra samtímanum og borgarmenningu. Festarnar eru grafískar og litasamsetningarnar minna á borgarljós og næturlíf. Jafnframt bera þær með sér vísanir í hefðbundna ættbálka-skartgripi (tribal jewelry) og eru því hlaðnar skýrskotunum til bæði fortíðar og nútíðar, borgarmenningar og heimsmenningar, hefða og þess óhefðbundna.

Twinwithin.com

Systurnar Kristín og Áslaug ásamt Orra Helgasyni.
Twin Within leggur sig fram við það að hanna óhefðbundna en á sama tíma aðgengilega, handgerða skartgripi fyrir einstaklinga sem eru óhræddir við að tjá sinn persónulega stíl.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×