Lífið

Aðventugleði og gersemar

Myndir / Kristín Sigurðardóttir
Hildur Hafstein hélt aðventukokteil á vinnustofu sinni um helgina sem nú er komin í fallegan jólabúning. Þar sýndi Hildur nýjustu línuna sína. Jólarauðvín og laufabrauð var á boðstólnum og fullt af skemmtilegum gestum eins og sjá má í myndasafni

Sem fyrr eru orkusteinarnir í fyrirrúmi en nú mjög fínlegir og demantsskornir, bæði bundnir upp og þræddir í silfurkeðju. Indjánafjöðrin sem stendur fyrir fallegan boðskap eins og frelsi, visku, traust, sannleika, heiður og styrk er innblástur Hildar og fallegar silfurfjaðrir prýða gripina.

Hildur Hafstein á Facebook.

Hildur Hafstein (fyrir miðju) í góðum félagsskap.
Skartið hennar Hildar er vinsælt - enda dásamlegt í alla staði.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×