Sport

Ellefu Íslandsmet á seinni deginum í Ásvallalaug

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Sverrir Gíslason
Íslandsmóti fatlaðra í sundi í 25 metra laug lauk í Ásvallalaug í Hafnarfirði í dag. Ellefu Íslandsmet voru sett á síðari degi mótsins en alls voru sett þrjátíu Íslandsmet á keppnisdögunum tveimur.

Marinó Ingi Adolfsson í flokki hreyfihamlaðra S8 setti flest Íslandsmet allra eða sjö. Á hæla honum kom Thelma Björg Björnsdóttir með sex Íslandsmet. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir methafana ásamt fötlunarflokki þeirra, keppnisgrein og tíma.

Flokkar S1-S10 eru flokkar hreyfihamlaðra þar sem S1 er mesta fötlun og S10 minnsta fötlun. Flokkar S11-S13 eru flokkar blindra og sjónskertra þar sem S11 er flokkur alblindra en flokkur S14 er flokkur þroskahamlaðra.

Myndir frá mótinu má sjá á myndasíðu Íþróttasambands fatlaðra, smellið hér.

Íslandsmethafarnir

Marinó Ingi Adolfsson S8 50 frjáls aðferð 0:35,73

Marinó Ingi Adolfsson S8 50 baksund 0:39,95

Marinó Ingi Adolfsson S8 400 frjáls aðferð 5:56,42

Marinó Ingi Adolfsson S8 50 flugsund 0:43,25

Marinó Ingi Adolfsson S8 100 baksund 1:24,81

Marinó Ingi Adolfsson SB7 50 bringusund 0:53,22

Marinó Ingi Adolfsson S8 200 frjáls aðferð 2:52,48

Thelma Björg Björnsdóttir S6 50 frjálst 0:41,38

Thelma Björg Björnsdóttir SM6 200 fjór 4:07,68

Thelma Björg Björnsdóttir SB5100 bringa 2:22,80

Thelma Björg Björnsdóttir S6 100 frjálst 1:29,75

Thelma Björg Björnsdóttir SM6 100 fjór 1:55,34

Thelma Björg Björnsdóttir S6200 frjálst 3:06,21

Hjörtur Már Ingvarsson S5 50 frjálst 0:42,84

Hjörtur Már Ingvarsson SM5 200 fjór 4:00,47

Hjörtur Már Ingvarsson SB5 100 bringa 2:24,16

Hjörtur Már Ingvarsson S5 50 baksund 0:55,81

Kolbrún Alda Stefánsdóttir S14 50 frjálst 0:30,46

Kolbrún Alda Stefánsdóttir S14 50 bak 0:37,49

Kolbrún Alda Stefánsdóttir SB14 100 bringa 1:26,87

Jón Margeir Sverrisson S14 100 flugsund 1:02,34

Jón Margeir Sverrisson S14 400 frjálst 4:16,93

Jón Margeir Sverrisson S14 50 flugsund 0:27,75

Íva Marín Adrichem S11 50 frjáls aðferð 0:50,18

Íva Marín Adrichem S11 100 frjáls aðferð 2:03,97

Íva Marín Adrichem S11 100 bak 2:13,99

Pálmi Guðlaugsson S7 50 frjáls aðferð 0:34,89

Pálmi Guðlaugsson SM7 200 fjórsund 3:15,84

Karen Axelsdóttir S2 50 baksund 1:55,94

Vilhelm Hafþórsson S14 50 frjáls aðferð 0:25,51


Tengdar fréttir

Nítján Íslandsmet í Ásvallalaug

Sannkallað metaregn var á fyrri degi Íslandsmóts fatlaðra í sundi í 25 metra laug sem fram fer í Ásvallalaug í Hafnarfirði um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×