Lífið

Mættu hóflega seint

Ólafur Ragnar Grímsson
Ólafur Ragnar Grímsson
Iceland Airwaves-hátíðinni lauk í gær með hátíðartónleikum Sigur Rósar í Laugardalshöll. Enginn sem er maður með mönnum lét sig vanta á tónleikana og slíkur viðburður er að sjálfsögðu ekki fullkomnaður nema Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff láti sjá sig.

Fólk var farið að undrast um þau í gærkvöldi þegar þau komu loksins á svæðið, með þeim allra síðustu í húsið. Í Höllinni mátti einnig sjá tónlistarmenn á borð við Hilmar Örn Hilmarsson, Samúel Jón Samúelsson, kenndan við Jagúar, og Unnstein Manúel Stefánsson sem sló ítrekað í gegn um Airwaves-helgina með sveitinni Retro Stefson.

- óká, sh






Fleiri fréttir

Sjá meira


×