Lífið

Spila í Japan

Nanna Bryndís Hilmarsdóttir
Nanna Bryndís Hilmarsdóttir
Of Monsters and Men spilar í fyrsta sinn í Japan á næsta ári. Tónleikarnir verða í höfuðborginni Tókýó 24. janúar og eru Nanna Bryndís Hilmarsdóttir og félagar að vonum mjög spennt fyrir ferðalaginu.

Vinsældir hljómsveitarinnar eru gífurlegar og til marks um það er hún bókuð á tónleika frá 15. nóvember þangað til í apríl á næsta ári.

Meðal viðkomustaða verða Evrópa, Norður-Ameríka, Ástralía og Suður-Ameríka þar sem hljómsveitin spilar á tónlistarhátíðinni Lollapalooza. Hljómsveitin er í fríi hér heima um þessar mundir.

Hún stígur næst á svið á Airwaves-hátíðinni á fimmtudaginn áður en flogið verður af stað til Kanada um miðjan mánuðinn.

- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×