Lífið

Helgi ekki á leið í pólitík

Helgi Seljan.
Helgi Seljan.
Margir hinna tæplega fimm þúsund Facebook-vina Helga Seljan sjónvarpsmanns ráku upp stór augu í gær þegar tilkynnt var á síðu hans að hann hygðist láta af störfum hjá Ríkisútvarpinu og fara í framboð fyrir Bjarta framtíð.

Einhverjir hvöttu hann til þess að hætta við ákvörðun sína, en flestir virtust þó átta sig á að um grín væri að ræða. Nokkru síðar kom einmitt önnur tilkynning þar sem Helgi grínaðist með að hafa lokið stjórnmálaþátttöku eftir að hafa stofnað Bjarta dögun og tapað formannskosningu.

Það voru nefnilega vinnufélagar Helga sem báru ábyrgð á fyrri tilkynningunni og Helgi ætlar ekki að hasla sér völl í pólitík. Einhver vinnufélaganna í Kastljósi hafði komist í tölvu hans á meðan hann brá sér af bæ í hádeginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×