Sif Atla: Er það ekki bara svolítið íslenskt að fara alltaf erfiðu leiðina að öllu Óskar Ófeigur Jónsson í Osló skrifar 19. september 2012 20:43 „
Þetta var ömurlegt," var það fyrsta sem kom upp úr Sif Atladóttur eftir 1-2 tap á móti Norðmönnum á Ullevaal leikvanginum í kvöld. Íslenska liðið var miklu meira með boltann og átti jafnteflið skilið sem hefði komið liðinu beint inn á Evrópumótið næsta sumar. „Þetta var voða skrýtið. Þær sköpuðu ekki neitt og svo kemur mark upp úr engu. Þetta var svona dæmigert einbeitingaleysi," sagði Sif um þrjár skelfilegar mínútur í lok fyrri hálfleiks þegar norska liðið skoraði bæði mörkin sín. „Þetta var of mikið stress hjá okkur í fyrri hálfleik og við vorum að reyna of mikið af löngum boltum sem er eitthvað sem við ætluðum ekki að gera. Þær vildu hafa þannig en þegar við fórum að spila stuttum sendingum í seinni hálfleiknum þá áttu þær ekki möguleika. Þær voru orðnar stressaðar og maður heyrði bara stanslaust, útaf með boltann, útaf með boltann. Þær lágu líka í grasinu eins mikið og þær gátu en því miður féll þetta þeirra megin í dag," sagði Sif. „Við vorum aðeins of mikið að flýta okkur á síðasta þriðjungnum og í staðinn fyrir að finna auðveldu sendinguna þá tókum við skot af löngu færi eða eitthvað svoleiðis. Við þurfum bara að vinna í þessu því við erum betri en þetta og eigum að gera betur," sagði Sif en hún hrósaði mikið marki Margrétar Láru Viðarsdóttur. „Við skoruðum æðislegt mark eftir þvíklíkt uppspil og það væri gaman að sjá það aftur á myndbandi. Við hefðum viljað fá annað svona," sagði Sif í léttum tón. Framundan eru leikir í umspilinu. „Þetta dettur einhvern veginn alltaf þannig fyrir okkur að við þurfum að fara erfiðu leiðina að öllu. Er að ekki svolítið íslenskt bara. Við förum í gegnum þetta og þurfum bara að peppa okkur upp. Við verðum fúlar í kvöld en á morgun tekur bara nýtt verkefni við," sagði Sif.
Fótbolti Mest lesið „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Íslenski boltinn Liverpool nær samkomulagi um Slot Enski boltinn Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Enski boltinn Stjarnan skellti tvisvar á Belichick: „Það er eins gott að þetta sé ekki grín“ Sport Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Enski boltinn „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Handbolti Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Körfubolti Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum Handbolti „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Handbolti Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Fleiri fréttir „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Ungstirnið nýtti tækifærið og skaut Real nær titlinum Íslendingarnir nálgast fallið Titilbaráttan endanlega úti eftir tap Söru og stallna Íslendingarnir áberandi í jafntefli Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“ Marta hættir í landsliðinu eftir Ólympíuleikana Víkingar fengu góða sumargjöf Leikmaður Newcastle tók meirapróf Amnesty segir að FIFA rúlli út rauða dreglinum fyrir Sádana Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Rashford: Nú er nóg komið Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Sjá meira