Erlent

Myrti mæðgur og skrifaði á vegginn með blóði: "Free pussy riot“

Skjáskot úr rússnesku sjónvarpi.
Skjáskot úr rússnesku sjónvarpi.

Lík mæðgna fannst í borginni Kazan í Rússlandi en samkvæmt yfirvöldum þar í landi hafði morðinginn skrifað með blóði á vegginn: „Free Pussy Riot".



Málið hefur vakið gríðarlega athygli í Rússlandi en ráðamenn í rússnesku réttrúnaðarkirkjunni létu hafa eftir sér í fjölmiðlum í dag að blóð mæðgnanna væri á höndum stuðningsmanna pönkhljómsveitarinnar, eins og kunnugt er, voru fangelsaðar fyrir að halda pönktónleika í kirkju.



Lögreglan telur skilaboðin hafa verið skrifuð á vegginn til þess að afvegaleiða lögregluna í rannsókn sinni.



Konurnar voru líklega myrtar í síðustu viku. Móðirin var 76 ára gömul en dóttirin 38 ára. Talið er líklegt að morðinginn sé annaðhvort fíkill sem vilji afvegaleiða lögreglu með skilaboðunum eða andlega vanheill einstaklingur.



Rússneskir ríkisfjölmiðlar hafa farið mikinn í umfjöllun sinni um málið og taka undir ásakanir forsvarsmenn kirkjunnar um að stuðningsmenn hljómsveitarinnar beri óbeint ábyrgð á morðunum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×