Lífið

Sigur Rós flýgur til Evrópu

Sigur Rós flýgur til Evrópu.
Sigur Rós flýgur til Evrópu.
Hljómsveitin Sigur Rós hefur tónleikaferðalag sitt um meginland Evrópu með þátttöku í tónlistarhátíðinni Rock en Seine í París í kvöld.

Alls verða tónleikarnir fimmtán talsins í tólf löndum. Þeir síðustu verða í Póllandi sautjánda september.

Í október taka Jónsi og félagar sér góða hvíld en snúa svo aftur í nóvember með tónleikum á Airwaves-hátíðinni, sex tónleikum í Ástralíu og þrennum í Taívan, Singapore og Malasíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×