Erlent

Lögreglu tókst að stöðva tékkneskan Breivik í tæka tíð

Heima hjá manninum fundust 400 einingar af skotfærum, auk vopna og einkennisfatnaðar.
Heima hjá manninum fundust 400 einingar af skotfærum, auk vopna og einkennisfatnaðar. Úr myndasafni
Lögregluyfirvöld í Tékklandi hafa ákært mann sem grunaður er um að skipuleggja hryðjuverkaárásir í landinu svipaðar þeim sem Anders Behring Breivik skipulagði í Osló og Útey 22. júlí í fyrra.

Maðurinn, sem er 29 ára, var ákærður fyrir brot á vopnalögum og fyrir að ógna öryggi almennings. Vopn, sprengjur og einkennisklæðnaður lögreglu fannst í íbúð mannsins í borginni Ostrava. Rannsakendur segja að hann hafi notað dulnefnið Breivik í samskiptum við aðra á internetinu. Maðurinn hefur fimm sinnum áður hlotið dóm fyrir afbrot, að því er fram kemur á fréttavef BBC. Í eitt skiptið fyrir að sprengja upp gamlan trjákofa.

Lögreglan leitaði í íbúð mannsins hinn 10. ágúst en fyrst í gær voru upplýsingar veittar um það sem þar fannst. Ráðist var í húsleit í íbúð mannsins eftir að lögreglunni bárust ábendingar um að maðurinn hefði í hyggju að virkja fjarstýrða sprengju sem hann hafði búið til úr loftskeyti sem hann hafði komist yfir. Maðurinn var með fjarstýringuna á sér þegar hann var handtekinn en auk vopna og einkennisfatnaðar lögreglu fundust líka 400 einingar af skotfærum í íbúðinni.

Umdæmisstjóri tékknesku lögreglunnar á svæðinu sagði að lögreglan væri að rannsaka möguleg tengsl við Anders Behring Breivik í Noregi og þá hvort maðurinn hafi samsamað sig Breivik á einhvern hátt.

Nágrannar mannsins, en nafn hans hefur ekki verið gefið upp, hafa sagt tékkneskum fjölmiðlum að maðurinn hafi átt við geðræn vandamál að stríða, en að hann hafi ekki verið öfgamaður.

Frá Noregi er það að frétta að útlit er fyrir að dómur verði kveðinn upp yfir Anders Behring Breivik í næstu viku en þá mun liggja fyrir hvort hann hljóti langan fangelsisdóm eða verði dæmdur til að sæta öryggisgæslu á geðheilbrigðisstofnun til lífstíðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×