Erlent

Pabbi Breiviks skrifar bók um hann

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Pabbi Breiviks ætlar að skrifa bók um hann.
Pabbi Breiviks ætlar að skrifa bók um hann. mynd/ afp.
Pabbi Anders Behring Breivik ætlar að skrifa bók um son sinn. Pabbinn, sem heitir Jens Breivik, er 76 ára gamall og býr í Frakklandi. Breivik myrti, sem kunnugt er, 76 í Osló og Útey í Noregi þann 22. júlí í fyrra.

Hann hefur staðfest við útvarpsstöðina P4 í Noregi að hann hyggist skrifa bók um soninn. „Já, það passar, en ég vil ekki tjá mig neitt um það," segir hann í samtali við P4. P4 hefur verið í sambandi við stærstu bókaforlög í Noregi, en enginn af þeim hefur fengið handrit frá pabba Breiviks. Forlögin eru þó mjög áhugasöm um að ræða við hann.



Hér má sjá umfjöllun DR um pabba Breiviks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×