Tíska og hönnun

Frumsýna nýja Kronkron-línu og halda happdrætti

Úr nýrri vor- og sumarlínu Kron by Kronkron.
Úr nýrri vor- og sumarlínu Kron by Kronkron. Myndir/Saga Sig
Á fimmtudaginn verður slegið til veislu í versluninni Kronkron við Laugaveg þar sem ný vor- og sumarlína merkisins Kron by Kronkron verður til sýnis.

Veislan er einnig haldin í tilefni af HönnunarMars sem er að sigla af stað og nær hámarki um helgina. Verslunin mun skarta sínu fegursta og auk nýju línunnar verða sýndar ljósmyndir eftir Sögu Sig sem hún tók fyrir línuna.

Auk þess blæs verslunin til árlegs happdrættis þar sem verðlaunin eru ekki af verri endanum, gersemar úr nýrri vor- og sumarlínu Kron by Kronkron. Allir gestir veislunnar geta tekið þátt í happdrættinu. Tónlistin verður í höndum Guðmundar Úlfarssonar en gleðin hefst klukkan 19 og stendur til klukkan 21.

Smellið á myndina til að fletta nokkrum af þeim myndum sem verða til sýnis í Kronkron.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×