Tíska og hönnun

Hönnun í hávegum höfð hjá Epal

Myndir/Epal
HönnunarMars fer nú fram í fjórða skipti og áhugafólk um hönnun bíður fullt eftirvæntingar eftir að sjá hvað íslenskir hönnuðir hafa nýtt fram að færa.



EPAL tekur að þessu sinni virkan þátt í HönnunarMars með því að sýna verk hátt í tuttugu hönnuða í versluninni á Skeifunni 6 dagana 22.-25. mars 2012



EPAL hefur frá upphafi lagt metnað sinn í að styðja við bakið á og kynna íslenska hönnuði og verk þeirra bæði hérlendis sem erlendis. Ein leiðin til þess að það megi takast er að taka þátt í HönnunarMars með sýningu á verkum hönnuðanna.

HönnunarMars í EPAL í ár má lýsa með því að segja að þar beri fyrir augu góða blöndu af verkum þekktra sem og nýrra upprennandi hönnuða sem eru að stíga sín fyrstu skref á hönnunarbrautinni.

Verkin á sýningunni í EPAL eru ótrúlega fjölbreytt, allt frá fullmótuðum hlutum sem tilbúnir eru til sölu til hugmynda á frumstigi. Þarna getur að líta húsgögn, leikföng, ljós, teppi og nytjahluti sem eru jafnt til heimilisprýði og daglegrar notkunar. En með því að hafa á heimilinu íslenska hönnun prýðum við það ekki aðeins heldur stuðlum að því að þroska hönnunarvitund landsmanna.

Opnunartíminn í EPAL á meðan HönnunarMars stendur yfir er frá kl. 10.00-18.00 fimmtudag og föstudag, 22. og 23.mars, frá 11.00-16.00 laugardaginn 24 mars og frá 12.00-16.00 sunnudaginn 25. mars. Opnunarhátíð verður hins vegar miðvikudaginn 21. mars frá kl. 17.00 -20.00.

Þátttakendur í HönnunarMars í EPAL eru:


Katrín Ólína Pétursdóttir / Borð 3 stk. og smáhlutir.

Sigríður Heimisdóttir vöruhönnuður / Skápur og kollar.

Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir & Halla Björk Kristjánsdóttir / Glös, kertastjakar og smáhlutir.

Haf by Hafsteinn Júlíusson / Næringardiskurinn.

Tulipop / Matarstell og smáhlutir.

Erla Sólveig Óskarsdóttir / Sófi.

Helga Sigurbjarnadóttir / Kollur og smáhlutir.

Chuck Mack / Matur og Vín vörulína.

Hrafnkell Birgisson / Blómavasar.

Jón Björnsson / Ostabakki.

Mottuverksmiðajn elivogar – Sigríður Ólafsdóttir & Sigrún Lára Shanko / Teppi.

Inga Elín / Ljós.

Demo – handverk – Dagný Elsa Einarsdóttir & Magnús Ólafsson / Ljós.

FærID / Skemil, bakki, púðar og herðatréið Willow

Hring eftir Hring – Steinunn Vala / skartgripir

Hekla Björk – Lóa... Snagar

Marún Design – Marta Pálsdóttir & Sigrún Agnes Rúnarsdóttir / Staflhringir, samfellur og bolir.

Guðrún Valdimarsdóttir vöruhönnuður / Kertastjakar og leikfangakubbar.

Margrét Ólafsdóttir innanhúsarkitekt / Púsluhús.

Anna Þórunn / kertastjakar og vasi

Sveinbjörg Hallgrímsdóttir / Thermo bollar, birkibakkar & textíl

Norðaustan 10






Fleiri fréttir

Sjá meira


×