Erlent

Vinsælast á Vísi árið 2011 - Erlendar fréttir

Shinmoedake.
2011 var viðburðaríkt og kenndi ýmissa grasa. Hér fylgir listi yfir fimm vinsælustu fréttir ársins 2011 í flokki erlendra frétta á Vísi.

Þar fyrir neðan eru tíu innlendar fréttir sem nutu einnig mikilla vinsælda á árinu.









1. Fjórða áfallið í Japan: Eldgos í suðvesturhluta landsins

MARS: Eldgos varð í fjallinu Shinmoedake í Japan í gær og truflar flugsamgöngur. Fjallið er í suðvesturhluta Japans, á Kyushu eyjunni, sem er talsvert frá hamfarasvæðunum í Japan, þar sem flóðbylgjur hafa skilið eftir sig ótrúlega slóð eyðileggingar með þeim afleiðingum að 15 þúsund manns er saknað.

Gosið olli mikilli skelfingu á eyjunni en það er það stærsta á svæðinu í 52 ár. Gosmökkurinn hefur truflað flugsamgöngur lítillega.

Fólk, sem er búsett næst fjallinu, hefur verið flutt af svæðinu. Fjallið gaus lítillega í janúar en sumir vísindamenn telja að eftirskjálftarnir hafi vakið það aftur til lífsins.

Því er gosið í raun fjórða áfallið sem Japanir hafa orðið fyrir síðan á föstudaginn. Fyrst var það jarðskjálftinn, svo flóðbylgjan og nú er möguleiki á meiriháttar kjarnorkuslysi í Fukushima.

Talið er að Madeleine líti út eins og stúlkan á myndinni til hægri.
2.Nýjar vísbendingar í hvarfi Madeleine



JANÚAR: Verið er að rannsaka nýjar vísbendingar í máli Madeleine McCann, litlu stúlkunnar sem var rænt í Portúgal árið 2007.

Þrjátíu og fimm ára kaupsýslumaður hefur tilkynnt lögreglunni að hann hafi séð hana í fylgd með manni, sem svipar til teikningar af grunuðum ræningja, og tveimur konum fyrir utan verslunarmiðstöð í Dúbaí í nóvember síðastliðinn.

Thumbs up!
3. Barnið sýndi að allt væri í lagi með þumlinum

FEBRÚAR: Verðandi foreldrunum Donnu Sayer og Simon Biscoe brá heldur heldur betur í brún þegar þau fóru í 20 vikna sónar á dögunum. Barnið þeirra gaf í skyn að allt í væri í góðu standi með því að sýna þumalinn.

Parið fór í reglubundna skoðun og var þeim tjáð að höfuðið á barni þeirra væri of lítið. Þau voru beðin um að fara í nánari rannsókn á spítala á Kent og Canterbury spítala tveimur vikum síðar en þau búa sjálf Northwood Road, í Whistable á Bretlandi.

Harold Camping.
4. Heimsendir 21. maí 2011?



MARS: "Það verður heimsendir þann 21. maí árið 2011, klukkan sex að morgni að staðartíma í Kalíforníu," segir útvarpspredikarinn Harlold Camping, sem hefur spáð í tölur í um 70 ár en hann er verkfræðingur að mennt.

Harold er þekktur víðsvegar um heiminn og rekur hann fjöldan allan af útvarpsstöðvum í Bandaríkjunum og um allan heim. Tugir þúsunda manna um allan heima líta á hann sem spámann en hann rekur trúarsöfnuð sem er metinn á 120 milljónir bandaríkjadollara.

Fólkið játaði að vera haldið kynlífsfíkn.Mynd/AFP
5. Kona á sjötugsaldri handtekin fyrir kynlífsleik út á götu

FEBRÚAR: Franska lögreglan handtók sextíu og þriggja ára gamla konu á fjölfarinni verslunargötu í bænum Carcassone í suðvesturhluta landsins.

Konan hafði brotið það af sér að leiða fertugan mann áfram í ól sem fest var við beran lim mannsins.

Parið hefur verið ákært fyrir ósæmilega hegðun á almannafæri og fer fyrir dómara í apríl.

Fólkið játaði að vera haldið kynlífsfíkn og sagðist hafa verið í miðjum leik þegar það var handtekið, að því er fréttastofa AFP hefur eftir lögreglu.





AÐRAR VINSÆLAR ERLENDAR FRÉTTIR:

FEBRÚAR:

Hetjan með handtöskuna lét ræningja fá það óþvegið


Bandarískri fréttakonu nauðgað á Frelsistorginu

MARS:

Hrikalegar myndir af árásinni í Líbíu

Tíu metra flóðbylgja skall á hafnarbæ


APRÍL:

Lífvörður hraunaði yfir Kate Middleton á Facebook

MAÍ:

Osama bjó í víggirtu stórhýsi - allt rusl var brennt

JÚLÍ:

Amy Winehouse fannst látin í íbúð sinni

Var í SMS-sambandi við móður sína allan tímann

Myndbandið sem morðinginn setti á netið rétt fyrir ódæðin

OKTÓBER:

Gaddafi fallinn - Myndir birtar af líkinu




Tengdar fréttir

Vinsælast á Vísi árið 2011 - Íþróttir

2011 var viðburðaríkt og kenndi ýmissa grasa. Hér fylgir listi yfir fimm vinsælustu fréttir ársins 2011 úr Sportinu á Vísi. Þar fyrir neðan eru tíu íþróttafréttir sem vöktu einnig mikla athygli á árinu.

Vinsælast á Vísi árið 2011 - Umræðan

Á hverjum einasta degi ársins birtust nýjar greinar í Umræðunni á Vísi. Hvort sem það voru fastir pennar Fréttablaðsins og Vísis, aðsendar greinar eða greinaflokkar á borð við Öðlinginn; flest helstu mál samtímans voru krufin til mergjar á þessum vinsæla og lifandi vettvangi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×