Innlent

Björk og Ómar tóku karaókí-dúett

Björk og Ómar tóku lagið í Norræna húsinu í dag.
Björk og Ómar tóku lagið í Norræna húsinu í dag. MYND/Anton
Björk Guðmundsdóttir og Ómar Ragnarsson tóku saman lagið í Norræna húsinu fyrr í dag þar sem stærsta söngmót Íslandssögunnar hófst klukkan þrjú.

Stefnt er að því að syngja frá klukkan þrjú til tólf í þrjá daga; fimmtudag, föstudag og laugardag eða þar til að minnsta kosti 35 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun um að auðlindir landsins verði framvegis í lögsögu almennings. Björk er einn af þeim sem standa að söngmótinu og eru landsmenn allir hvattir til að mæta.

Nú þegar hafa um tuttugu þúsund manns skrifað undir áskorun á www.orkuaudlindir.is. Norræna húsinu verður umbreytt í glæsilegan karaókí-skemmtistað þar sem verður opinn bar og frumorka í lofti. 

„Í hundrað ár verndaði gott fólk auðlindir okkar og almannahag. Á útrásartímanum var svo byrjað að selja auðlindirnar og ábyrgðarlausan aðgang að þeim. Nú er tími til að stöðva þá óheillaþróun. Við verðum að endurmeta stöðuna og ákveða hvort við viljum afsala okkur arði og ábyrgð á auðlindum okkar," segir í fréttatilkynningu um söngmótið. 

Þá segir í tilkynningu frá undirbúningshópnum að landsmenn eru allir hvattir til að mæta í Norræna húsið, eða á samkomustaði út um land allt, lagvissir og lagvilltir, og syngja einsöng, tvísöng eða fjöldasöng. Þá sé einnig fyrirtaks flygill í Norræna húsinu og er fólkið velkomið að syngja við eigin undirspil eða vina.

„Allir sem bera hag landsins fyrir brjósti leggjast á eitt og flytja náttúru Íslands kraftmikinn óð. Syngjum orkuauðlindirnar aftur til okkar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×