Jól

Aðventudrykkir að ítölskum sið

Heitt ekta súkkulaði
Heitt ekta súkkulaði
Heitt súkkulaði
Tinna Jóhannsdóttir og Ben Stanley James Cockerill, kaffibarþjónn á Kaffifélaginu.

Fyrir tvo

Ég nota tvenns konar súkkulaði þegar ég útbý heitt súkkulaði. af gömlum vana nota ég síríus, en aðrar tegundir eru eflaust ágætar líka. 70% súkkulaðið gefur aukakraft og dýpt sem mér finnst ekki nást ef notað er eingöngu Konsúm eða annað sambærilegt.

300 ml nýmjólk

10-12 bitar Siríus Konsúm

5-6 bitar Síríus 70%

Þegar ég geri fáa bolla finnst mér best að þeyta mjólkina og súkkulaðið saman með cappuccino-stútnum á espresso-vélinni minni því þá verður drykkurinn léttari. Annars nota ég súkkulaðipottinn hennar ömmu sem ég fékk fyrirfram í arf. Borið fram með þeyttum rjóma og skreytt með kakódufti.



Súkkulaði Stanley

Súkkulaði Stanley er léttari útgáfa af Mokka eða Sviss Mokka; súkkulaðiblandað kaffi þar sem kaffihlutinn er lítill americano. Stanley er nefndur í höfuðið á föður sínum, mági mínum, Benley James Cockerill matargati og -gúrú.

Einfaldur ítalskur espresso (2,5 cl)

2,5 cl heitt vatn

10 cl heitt súkkulaði (sama uppskrift og að ofan)

rjómi eftir smekk



Jóladrykkurinn í ár - Chai latte fyrir tvo

Ég er ekki mikil temanneskja en fæ mér það þó stundum, sérstaklega ef fingurnir duga ekki til að telja kaffibolla dagsins... Ég laga Chai úr teblöndu sem ég kaupi hjá Österlandsk tehus í Kaupmannahöfn og læt sírópið alveg eiga sig. Þar kenndu mér tesérfræðingar að Chai sé annsi dramatískt te; bæði er notað um það bil tvöfalt magn af tei og svo er það látið trekkja tvisvar sinnum lengur. Uppistaðan er svart indverskt te sem er kryddað með kanil, negul og ýmsum unaðskryddum sem ég kann ekki aðnefna. Ég veit að það fæst líka í pokum en ég hef ekki smakkað það.

Til að laga 200 ml af tei nota ég 4-5 g af tei(u.þ.b. 2 teskeiðar) og læt trekjja í um það bil tíu mínútur. Svo bæti ég við 50-100 ml af mjólk, eftir því hvað ég vil hafa það sterkt, hita allt saman og þá kemur cappuchinostúturinn sterkur inn. Hellt í tvö glös og sætt með hrásykri eða hunangi ef vill.



Birta - Krapísdrykkur og vinkona Bens

Birta - Krapísdrykkur og vinkona Bens

Í Birtu notum við:

góða lúku af klaka

slettu af mjólk

teskeið af grófum hrásykri

Allt mulið saman í blandara svo úr verði mjólkurkrap (slabb!) sem mokað er í glas. Yfir krapið er lagaður einn ítalskur espresso. Borðað með skeið og restin soguð upp með röri.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×