Erlent

Fimmta morðið á einum mánuði

Fimm morð hafa verið framin í Ósló á einum mánuði. Síðasta tilfellið var í fyrrinótt þar sem ungur maður var drepinn á heimili sínu.
Fimm morð hafa verið framin í Ósló á einum mánuði. Síðasta tilfellið var í fyrrinótt þar sem ungur maður var drepinn á heimili sínu. Nordicphotos/AFP
Ungur maður var myrtur á heimili sínu í Ósló, höfuðborg Noregs, í fyrrinótt og annar komst illa særður á slysadeild. Meintur árásarmaður var handtekinn í bakgarði hússins þar sem morðið átti sér stað.

Verknaðurinn hefur vakið mikinn óhug í Ósló, en fimm morð hafa verið framin í borginni á síðasta mánuði og alls 27 morð í Noregi frá áramótum, að undanskildum voðaverkum Anders Breivik.

Mennirnir þrír, fórnarlömbin og meintur gerandi, hafa ekki áður komið við sögu lögreglu. - þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×