Innlent

Vinsælast á Vísi árið 2011 - Umræðan

Andri Snær Magnason.
Á hverjum einasta degi ársins birtust nýjar greinar í Umræðunni á Vísi. Hvort sem það voru fastir pennar Fréttablaðsins og Vísis, aðsendar greinar eða greinaflokkar á borð við Öðlinginn; flest helstu mál samtímans voru krufin til mergjar á þessum vinsæla og lifandi vettvangi.

Hér fyrir neðan eru fimm vinsælustu greinar ársins á Umræðunni. Þar fyrir neðan er síðan að finna tíu greinar af þeim fjölmörgu sem vöktu mikla athygli á árinu.



1. Heimsendir er í nánd


eftir Andra Snæ Magnason

FEBRÚAR: Heimsendir er í nánd, teiknin blasa alls staðar við, ofbeldisleikir, netklám, steratröll og egófíkn á Facebook. Morgunblaðið slátraði Lesbókinni og bjó til vefsjónvarp þar sem Vala Grand sýnir okkur hvernig á að fara í partísleik á meðan annar kannar leyndardóm punghára Ásgeirs Kolbeins.

Þetta er það sem fullorðnir auglýsendur vilja kosta og útgerðarmenn tapa peningum á vegna þess að heimsendir er í nánd og ekkert skiptir máli. Yfirborðið er slæmt en það er barnaleikur miðað við það sem leynist undir yfirborðinu.

Sigríður Sigmarsdóttir.
2. Kæri litli kraftaverkastrákur!

eftir Sigríði Sigmarsdóttur

FEBRÚAR: Hér ligg ég og velti síðustu 8 vikum fyrir mér. Fyrir rúmlega 8 vikum byrjaði að blæða hjá mér og ég var bara gengin 18 vikur. Þú skilur þetta kannski ekki en meðganga er u.þ.b. 40 vikur.

Ég er búin að liggja í rúminu allan janúar og nú er lok febrúar og þú fæddur eftir aðeins 26 vikur og 6 daga. Ástæða blæðingarinnar var fylgjulos en við vorum heppin því við hefðum bæði getað verið í mikilli lífshættu og þú e.t.v. ekki lifað.

Ég var lögð inn á Meðgöngu og sængurkvennadeild gengin 24 vikur og 2 daga til að halda þér inni í bumbunni eins lengi og hægt var. Á þessum 18 dögum hefur heimur minn farið úr því að hafa allt á hreinu með alla bolta á loft í að hugsa um þig og mig og ekkert annað.

Árni Beinteinn.
3. Veruleiki ungs fólks á Íslandi

eftir Árna Beintein Árnason

FEBRÚAR: Ég er nýorðinn 16 ára. Ég þekki daglegt líf unglinga á Íslandi enda er ég í innsta hring. Mér líður eins og nokkurs konar njósnara með því að uppljóstra hvernig við rúllum! (slangur sem þýðir ; högum okkur í daglegu lífi).

Stundum finnst mér fullorðið fólk dæma yngri kynslóðina. Það er margt sem ýtir undir það. Nýleg könnun leiddi til dæmis í ljós sláandi niðurstöður. 40% stráka á aldrinum 16-19 ára finnst sjálfsagt að karlmenn séu ríkjandi kyn.

Gylfi Magnússon.
4. Æseifskviða

eftir Gylfa Magnússon

APRÍL: Grunnurinn að Icesave-deilunni er sú einfalda staðreynd að þegar eigum þrotabús Landsbankans var ráðstafað var það gert þannig að útkoman varð hagstæðari fyrir þá sem áttu innlánsreikninga á Íslandi en í Bretlandi eða Hollandi.

Nú hafa náðst samningar um það hvernig á að gera þetta upp með sanngjörnum hætti fyrir báða aðila. Íslenska ríkið bætir Hollendingum og Bretum upp hluta kostnaðarins við að gera innstæðueigendur í þeim löndum jafnsetta innstæðueigendum á Íslandi. Miðað er við afar lága vexti, sem er mikið hagsmunamál fyrir íslenska ríkið. Vextirnir eru til dæmis um helmingi lægri en Evrópulönd hafa boðið ríkissjóðum Grikklands og Írlands sem eiga í miklum kröggum.

Sæunn Ólafsdóttir.
5. Sniðugar nauðganir

eftir Sæunni Ólafsdóttur

NÓVEMBER: Fyrir mörgum árum var ég skiptinemi við háskóla í Madríd þar sem ég bjó í tæpt ár. Eitt sinn var mér boðið á kynningarkvöld á skemmtistað í miðborginni þar sem ætlunin var að skiptinemarnir hittust og kynntust betur. Allir fengu afhenta stóra límmiða með nafni og heimalandi til að líma á bringuna. Við drukkum og ræddum heimsmálin, dönsuðum og skemmtum okkur þangað til fleira fólk tók að fylla skemmtistaðinn.

Hópurinn minn hafði tvístrast en ákveðið að hittast á bar neðar í götunni. Ég ákvað að bregða mér fyrst á salernið. Það var upptekið. Á meðan ég beið á ganginum fóru framhjá mér þrír menn í hóp. Sá fremsti þeirra gjóaði á mig augunum þegar hann gekk hjá, staðnæmdist og sneri aftur til mín.





FLEIRI GREINAR SEM VÖKTU ATHYGLI Á ÁRINU:

JANÚAR:

Leiðbeiningar handa eigendum sólbaðstofa

Bíllinn í stofunni

MAÍ:

Takk!

JÚNÍ:

Kæra 7 ára barn, hertu þig

Strembin nótt

MR er ekki besti skólinn

OKTÓBER:

Á hverju ætlið þið þá að lifa? Háskólagráðum?

NÓVEMBER:

Neyðarkall frá neytanda

Til varnar mannorði Ólafs frænda míns Skúlasonar

Ég er kúgaður millistéttarauli!

DESEMBER:

Kynjafræði í framhaldsskólum


Tengdar fréttir

Vinsælast á Vísi árið 2011 - Íþróttir

2011 var viðburðaríkt og kenndi ýmissa grasa. Hér fylgir listi yfir fimm vinsælustu fréttir ársins 2011 úr Sportinu á Vísi. Þar fyrir neðan eru tíu íþróttafréttir sem vöktu einnig mikla athygli á árinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×