Viðskipti innlent

Um 600 hafa sótt um hjá WOW air

Skúli Mogensen
Skúli Mogensen
WOW air hefur borist tæplega 600 umsóknir um fjórar stjórnunarstöður og ótilgreindan fjöld af sumarstörfum flugliða sem auglýst voru fyrir helgi.

Í tilkynningu segir að ráðið verði í nokkra tugi starfa, bæði stjórnunarstöður og störf flugliða, en flestar umsóknirnar sem bárust eru um störf flugliða. Fleiri föst störf hjá félaginu verða auglýst á næstunni.

 

Undirbúningur að rekstri WOW air er í fullum gangi og búist er við því að hægt verði að byrja að bóka flug með félaginu á allra næstu dögum. Áætlunarflug félagsins mun svo hefjast næsta vor.

Skúli Mogensen, einn stofnanda fyrirtækisins, segir í tilkynningu frábært að sjá hversu margir séu búnir að sækja um.

„Það er ljóst að fleirum en okkur finnst þetta spennandi umhverfi að starfa í. Það verður ærið verkefni að velja úr öllum þessum umsóknum, en við munum vinna í því á næstu dögum. Miðað við móttökurnar þá er ég ekki í nokkrum vafa um að það verður traust og skemmtileg áhöfn hjá WOW sem þjóna mun sífjölgandi erlendum ferðamönnum ásamt ferðaglöðum Íslendingum á næstu árum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×