Lífið

Fæða sem hægir á öldrun

Eygló Linda Hallgrímsdóttir næringarþerapisti skrifar
Eygló Linda Hallgrímsdóttir næringarþerapisti er nýr pistlahöfundur á Lífinu.
Eygló Linda Hallgrímsdóttir næringarþerapisti er nýr pistlahöfundur á Lífinu.
Hollur matur og heilsusamlegt líferni hjálpar þér að örva hugarafl þitt og þú nærð markvisst utan um það sem þú vilt framkvæma.

Það léttir skapið, dregur úr streitu, eykur lífskraft þinn, stuðlar að sterkum og heilbrigðum líkama, hægir á öldrun, stuðlar að sterku ónæmiskerfi, örvar frjósemi og kynhvöt, styrkir hjarta- og æðakerfið, lækkar blóðfitu og of háan blóðþrýsting, kemur reglu á blóðsykur og fær þig til að ljóma og njóta augnabliksins.

Hollur matur eru allar hreinar afurðir. Eitthvað sem er lítið unnið og ekki búið að fylla af salti, sykri eða öðrum efnum sem líkaminn kann ekkert á.  Einnig er ráðlegt að vera meðvitaður um holla fitu/olíu eins og kaldpressaða ólífuolíu, hörfræolíu, sesamolíu, Udo's olíu, lýsi og avocado.

Þá er ráðlegt að drekka vatn og jurtate, forðast mikið af kaffi, áfengi og sleppa helst gosi. Til að fá sem mest magn af serotonin í þinn líkama, oft kallað gleðihormón líkamans, þá er gott að borða mikið af eftirfarandi fæðu:

• Sojabaunir (allt sem er soja)

• Sesamfræ

• Cachewhnetur

• Jarðhnetusmjör

• Lamb

• Túnfisk/makríl

• Lax/rækjur

• Kjúkling/kalkún

• Brún hrísgrjón

• Brúnar og hvítar baunir

• Möndlur

• Egg

• Hvítlauk

• Kókosflögur eða mjöl

• 70-80% Súkkulaði

• Spínat

• Kartöflur og sætar kartöflur (í hófi samt)

Í þessari fæðu er mikið magn af amínósýrunni triptófan og umbreytist hún auðveldlega í serotonin sem líkami þinn nýtir sér. Gott að taka inn B- sterkar (vítamín) til að nýta triptófanið sem best.

Lifandi hús - Heilsustofan.is næringarþerapía & fæðuóþolspróf á vegum Eyglóar.


Tengdar fréttir

Svona færðu sléttan kvið

Á meðan slæm kolvetni fita okkur um miðjuna eru aðrar fæðutegundir sem hjálpa okkur í baráttunni við aukakílóin. Hér nefni ég nokkur dæmi um góða fæðu...






Fleiri fréttir

Sjá meira


×