Íslenski boltinn

Ásgeir: Við drulluðum á okkur

Stefán Árni Pálsson á Árbæjarvelli skrifar
„Þetta er bara gjörsamlega til skammar og ég á ekki til orð yfir spilamennsku okkar í leiknum,“ sagði Ásgeir Börkur Ásgeirsson, leikmaður Fylkis, eftir tapið í kvöld.

„Við byrjuðum á hælunum og þeir skora þrjú mörk í fyrri hálfleiknum og slátruðu í raun leiknum.Við reyndum í seinni hálfleik að gera eins og við gátum og þá varð leikurinn jafnari en KR slakaði jafnframt á. Þetta var bara til skammar og við getum ekki boðið okkar fólki upp á svona leik".

„Menn eiga að sjálfsögðu að mæta dýrvitlausir til leiks eftir svona rasskellingu gegn Stjörnunni í síðustu umferð en það var ekki til staðar og við drulluðum á okkur. Við verðum bara að fara vera einbeittari í leik okkar, við erum að fá allt og auðveld mörk á okkur, en við erum ekkert hættir og ætlum okkur að vera í þessari toppbaráttu“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×