Íslenski boltinn

Hafþór: Dómarinn fer stundum í okkur sveitastrákana

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Þetta var bara meira bullið, við áttum þennan leik og síðan var dómarinn ekkert að hjálpa okkur,“ sagði Hafþór Atli Agnarsson, leikmaður BÍ/Bolungarvíkur eftir 2-2 jafntefli gegn Þrótti í dag. 

„Við eigum að sjálfsögðu ekki að láta dómarann fara svo í skapið á okkur eins og við gerum alltaf. Það hefur verið eins konar BÍ grýla að dómarinn sé alltaf á móti okkur sveitastráunum“.

Hafþór skoraði virkilega flott mark fyrir gestina í dag en hann skaut boltanum af um 30 metra færi í netið.

„Það var teipið á skónum sem hitti boltann svona hrikalega vel“.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×