Viðskipti innlent

Telur líkur á hóflegri vaxtalækkun fyrir páskana

Greining Íslandsbanka telur að nokkrar líkur séu á hóflegri vaxtalækkun hjá Seðlabankanum í aðdraganda páskanna. Vísibendingu um slíkt sé að finna í síðustu fundargerð Peningastefnunefndar sem birt var í gær.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að þótt óbreyttir vextir væru niðurstaðan við síðustu vaxtaákvörðun Seðlabankans fyrir hálfum mánuði síðan var síður en svo einhugur um þá ákvörðun að víkja frá vaxtalækkunarferli sem þá hafði staðið samfellt frá síðasta ársfjórðungi 2009.

Samkvæmt nýbirtri fundargerð peningastefnunefndar Seðlabankans af vaxtaákvörðunarfundi hennar þann 15. mars síðastliðinn vildu tveir nefndarmenn af fimm lækka stýrivexti um 25 punkta. Tillaga Seðlabankastjóra um óbreytta vexti var hins vegar samþykkt með fjórum atkvæðum, þar sem annar þessara tveggja féllst á hana með semingi. Fimmti nefndarmaðurinn greiddi atkvæði gegn tillögunni um óbreytta vexti vegna áframhaldandi veikrar stöðu þjóðarbúsins og skorts á hvers kyns verðbólguþrýstingi innanlands.

Samkvæmt fundargerðinni töldu nefndarmenn að nýjustu gögn um framvindu efnahagsmála, verðbólgu og gengisþróun gæfu nokkuð misvísandi leiðsögn um hvort þörf væri á að breyta aðhaldi peningastefnunnar. Auk þess horfðu þeir til óvissu vegna Icesave þjóðaratkvæðagreiðslu og óbirtrar áætlunar um gjaldeyrishöft, sem gæfi tilefni til sérstakrar aðgæslu. Áætlunin hefur nú litið dagsins ljós og má ljóst vera af henni að talsvert er enn í að aflétting almennra gjaldeyrishafta hefjist af einhverjum krafti. Þá verður komin niðurstaða í Icesave-kosningunni fyrir næstu vaxtaákvörðun, sem verður þann 20. apríl næstkomandi.

„Í ljósi ofangreindrar niðurstöðu má velta vöngum yfir því hvort fleiri meðlimir peningastefnunefndarinnar snúist á sveif með tvímenningunum framangreindu í dymbilvikunni. Við teljum í öllu falli að fundargerðin sé vísbending um að nokkrar líkur séu á hóflegri vaxtalækkun í aðdraganda páskanna,“ segir í Morgunkorninu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×