Innlent

Aðgerðirnar í dag beinast eingöngu að lánum til Tchenguiz

Aðgerðir Serious Fraud Office (SFO) og sérstaks saksóknara í dag tengjast eingöngu rannsóknum á meintum brotum vegna lánveitinga Kaupþings til Robert Tchenguiz og tengdra aðila en ekki meintum blekkingum eða villandi upplýsingagjöf Kaupþings í Bretlandi eða rannsókn SFO á EDGE-reikningunum, líkt og breskir fjölmiðlar greindu frá í dag.



Húsleit var gerð á skrifstofum tveggja fyrirtækja í Lundúnum í morgun og á heimilum átta einstaklinga. Sjö voru handteknir í aðgerðunum sem efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, réðst í með fulltingi lögreglunnar í Lundúnum og Essex. Meðal þeirra sem handteknir voru í Lundúnum eru bræðurnir Robert og Vincent Tchenguiz, Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings Singer & Friedlaner í Lundúnum, Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings og Guðni Níels Aðalsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fjárstýringar Kaupþings. Nöfn tveggja annarra sem handteknir voru í Lundúnum eru óþekkt.



Í Reykjavík var gerð húsleit á heimilum tveggja einstaklinga og tveir voru handteknir, en um er að ræða Bjarka Diego, fyrrverandi framkvæmdastjóri útlána Kaupþings og Guðmund Þór Gunnarsson, sem var viðskiptastjóri á útlánasviði Kaupþings. Ráðist var í þessar húsleitir og handtökur að beiðni Serious Fraud Office en lögreglumenn og rannsakendur frá embætti sérstaks saksóknara sáu um aðgerðirnar ásamt fulltrúum frá bresku stofnuninni.



Sigurði Einarssyni sleppt síðdegis


Sigurði Einarssyni var sleppt síðdegis að lokinni skýrslutöku. Ekki stóð til að hneppa hina handteknu í gæsluvarðhald, heldur var stefnt að því að sleppa þeim að loknum skýrslutökum.



Rannsókn Serious Fraud Office á Kaupþingi hefur staðið yfir frá haustinu 2009. Í fyrstu rannsakaði embættið ranga og villandi upplýsingagjöf til sparifjáreigenda á EDGE-reikningunum í Bretlandi og aðgerðir stjórnenda bankans fyrir hrun. Sú rannsókn er enn opin. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru aðgerðirnar í dag eingöngu vegna rannsóknar á útlánum Kaupþings til Robert Tchenguiz og tengjast ekki eldri rannsóknum.

Grunur um umboðssvik

Robert Tchenguiz var langstærsti lántakandi Kaupþings banka. Við hrun bankans námu útlán til hans tveimur milljörðum evra, jafnvirði 320 milljarða króna. Bresk refsilöggjöf er nokkuð ólík hegningarlögunum íslensku, en samkvæmt heimildum fréttastofu eru stjórnendur Kaupþings grunaðir um brot á ákvæðum sem eru skyld umboðssvikum í almennum hegningarlögum, þ.e þeir eru taldir hafa misnotað aðstöðu sína til lánveitinga til Tchenguiz með tilheyrandi tjóni fyrir hluthafa og kröfuhafa bankans. thorbjorn@stod2.is


Tengdar fréttir

Tengist rannsókn SFO

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir að handtökurnar sem gerðar voru í Bretlandi í morgun og í Reykjavík tengist rannsókn sem efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar hefur verið með í gangi síðan 2009.

Kaupþingsaðgerð vekur mikla athygli ytra

Umfangsmikil aðgerð efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar SFO og lögreglunnar í London í morgun hefur vakið mikla athygli í erlendum fjölmiðlum. Þetta er m.a. helsta frétt Financial Times á vefsíðu þess blaðs í dag.

Tchenguiz-bræður og Sigurður Einarsson handteknir í Lundúnum

Sigurður Einarsson fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings og Robert Tchenguiz, sem var stærsti viðskiptavinur bankans, voru handteknir í Lundúnum í morgun í sameiginlegri aðgerð Serious Fraud Office í Bretlandi og embætti sérstaks saksóknara á Íslandi.

Verða yfirheyrðir í allan dag

Búast má við því að mennirnir sem handteknir voru í tengslum við rannsókn bresku efnahagsbrotadeildarinnar, Serious Fraud Office, í Bretlandi í morgun verði látnir lausir áður en degi lýkur, segir David Jones upplýsingafulltrúi SFO. Hann segist ekki búast við því að krafist verði gæsluvarðhalds yfir mönnunum.

Bjarki Diego og Guðni Níels á meðal þeirra handteknu

Bjarki Diego, fyrrverandi framkvæmdastjóri útlána hjá Kaupþingi, er annar þeirra tveggja sem handteknir voru í morgun í tengslum við rannsókn á Kaupþingi. Þá var Guðni Níels Aðalsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fjárstýringar bankans, handtekinn í Lundúnum.

Nærmynd: Glaumgosinn Robert Tchenguiz

Bresk-íranski kaupsýslumaðurinn Robert Tchenguiz, sem handtekinn var í Lundúnum í morgun í tengslum við rannsókn Serious Fraud Office á Kaupþingi, sat í stjórn Exista og var stærsti einstaki lántakandi Kaupþings banka fyrir hrunið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×