Innlent

Forsetinn heimsótti í samhæfingarstöð almannavarna

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, heimsótti í morgun Samhæfingarstöðina í Skógarhlíð. Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri. og Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra tóku á móti forsetanum sem sat síðan upplýsingafund með fulltrúum ýmissa aðila sem manna samhæfingarstöðina.

Á fundinum fór Víðir Reynisson deildarstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, yfir skipulag almannavarna vegna eldgossins, hvernig það hafi verið virkjað, samstarf við vísindamenn og þær aðgerðir sem hafa staðið yfir frá upphafi eldgossins í Eyjafjallajökli.

Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði hjá Raunvísindastofnun Háskólans, gerði grein fyrir framvindu eldgossins og útskýrði hina mismunandi fasa þess. Hann fór einnig yfir hvernig staðið hafi verið að upplýsingaöflun m.a. með yfirlitsflugi þar sem teknar voru ratsjármyndir úr flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF sem hafi nýst einstaklega vel. Þá fór Guðrún Nína Petersen, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, yfir verkefni Veðurstofunnar vegna eldgossins, gerð öskufallsspár og samstarf við erlenda samstarfsaðila. Hún fór yfir hvernig askan hefur dreifst og hvað sé hugsanlega framundan í þeim efnum.

Að fundi loknum fór Ólafur Ragnar um samhæfingarstöðina og heilsaði upp á starfsfólk að störfum. Hann þakkaði starfsfólkinu fyrir vel unnin störf og óskaði því góðs og gleðilegs sumars.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×