Viðskipti erlent

Askan veldur gífurlegu tapi hjá flugfélögum og flugvöllum

„Það er enginn sem pantar sér flug fyrir morgundaginn í dag," segir Christiansen. „Þannig að þótt allt fari á fullt á morgun mun skorta farþega í þau flug."
„Það er enginn sem pantar sér flug fyrir morgundaginn í dag," segir Christiansen. „Þannig að þótt allt fari á fullt á morgun mun skorta farþega í þau flug."
Askan úr Eyjafjallajökli mun valda gífurlegu tapi hjá flugfélögum og flugvöllum í norðurhluta Evrópu og víðar um heiminn. Þess sjást m.a. merki í kauphöllum þessa stundina og sem dæmi má nefna að hluti í SAS hafa fallið um 7% í kauphöllinni í Kaupmannahöfn í dag.

Fjallað er um málið á börsen.dk. Þar segir að ef askan úr Eyjafjallajökli loki flugvöllum í meira en einn dag missi þeir um leið 3-4% af mánaðartekjum sínum.

„Flugvellirnir tapa tekjum frá bæði farþegum og flugfélögum og þetta getur orðið dýrkeypt fyrir báða aðila," segir Ole Kirchert Christiansen forstjóri Travel Brooker. Hann bætir því við að eftir að askan hverfur taki a.m.k. einn dag að koma starfsemi flugfélaganna og vallana í samt lag á ný.

Fyrir utan tekjutap af farþegum þurfa flugfélögin einnig að glíma við margvíslegan aukakostnað vegna öskunnar. Þau þurfa að skaffa farþegum sínum og áhöfnum hótelgistingar. Þar að auki kostar það skildingin að hafa flugvélar standandi aðgerðarlausar á flugvöllum þegar áætlanir gera ráð fyrir að þær séu í notkun 10 til 12 tíma á dag.

„Það er enginn sem pantar sér flug fyrir morgundaginn í dag," segir Christiansen. „Þannig að þótt allt fari á fullt á morgun mun skorta farþega í þau flug."









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×