Innlent

Allt flug með eðlilegum hætti

Reykjavíkurflugvöllur. Allir alþjóðaflugvellir á landinu hafa verið opnir síðan í gærkvöldi.
Reykjavíkurflugvöllur. Allir alþjóðaflugvellir á landinu hafa verið opnir síðan í gærkvöldi.
Allir alþjóðaflugvellir á landinu hafa verið opnir síðan í gærkvöldi og millilandaflugið fer nú um Keflavíkurflugvöll. Allt bendir til að innanlandsflug verði samkvæmt áætlun í dag eftir tveggja daga röskun. Fyrstu innanlandsvélarnar fóru frá Reykjavík í gærkvöldi til Akureyrar og Egilsstaða.

Áfram gaus í Eyjafjallajökli í nótt af svipuðum krafti og í gær, en spár um öskudreifingu benda sterklega til þess að allir alþjóðaflugvellirnir verði opnir næstu daga og að allt flug geti orðið samkvæmt áætlun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×