Innlent

Kosningar 2010: Utankjörfundur í Laugardalshöll frá og með mánudegi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Reykjavík fer fram í Laugardalshöll frá og með mánudeginum. Mynd/ Stefán.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Reykjavík fer fram í Laugardalshöll frá og með mánudeginum. Mynd/ Stefán.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga þann 29. maí 2010, hófst við embætti sýslumannsins í Reykjavík, Skógarhlíð 6, þann 6. apríl síðastliðinn og er opin á skrifstofutíma á milli kl. 9:00 - 15:30 virka daga. Um helgar er opið frá kl. 12:00 - 14:00.

Frá og með 10. maí næstkomandi fer atkvæðagreiðslan fram í Laugardalshöll og þá verður opið alla daga frá kl. 10:00 -22:00. Lokað verður á uppstigningardag þann 13. maí næstkomandi og hvítasunnudag þann 23. maí næstkomandi.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×