Innlent

Kosningastjóri Björgvins tók við Baugsstyrk

Kosningastjóri Björgvins G. Sigurðssonar tók viið Baugsstyrk árið 2006.
Kosningastjóri Björgvins G. Sigurðssonar tók viið Baugsstyrk árið 2006.

„Ég man vel eftir að hafa fengið styrkinn, það var ég sem bað um hann," segir Tómas Þóroddsson, kosningastjóri Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, en áður hafði verið þrætt fyrir tilurð styrksins.

Það var Sigurður G. Guðjónsson lögfræðingur, sem neitaði að framboð Björgvins hafði þegið styrk frá Baugi upp á 300 þúsund krónur. Sigurður sá um að greiða reikninga og gera upp prófkjörsbaráttu Björgvins.

Nú segir kosningastjóri Björgvins, Tómas, að hann muni vel eftir að hafa fengið styrkinn árið 2006. Spurður hversvegna Sigurðu G. Guðjónsson hafi enga vitneskju um styrkinn, eftir að hafa gert upp kosningabaráttuna, svarar Tómas: Það eina sem mér dettur í hug er að þetta sé einhver misskilningur."

Spurður afhverju eða hvernig styrkur upp á 300 þúsund krónur hafi ekki skilað sér í bókhaldið, segist Tómas ekki gera sér grein fyrir því í augnablikinu, hann þurfði að skoða málið betur.

DV greindi frá því á miðvikudaginn að Björgvin hafi fengið 300 þúsund krónur frá félaginu en Sigurður G. Guðjónsson bar það til baka síðar um daginn. Í dag birti DV hins vegar frétt um það að sannreynt hafi verið að reikningurinn hafi verið greiddur af Baugi.

Sigurður sagði á Vísi fyrr í dag: „Ég þarf að sjá hvort 300 þúsund krónur hafi komið inn vegna þessa en það fæ ég bara að sjá á eftir, allt er þetta til í bókhaldi. Ég hef ekki logið neinu, ég sagði þeim bara að ég kannaðist ekki við það að Baugur hefði styrkt framboðið."

Ekki hefur náðst í Björgvin G. Sigurðsson þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.












Tengdar fréttir

Algjörlega ómeðvitaður um Baugsstyrk Björgvins

Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður, segist þurfa að sannreyna hvort Baugur hafi styrkt Björgvin G. Sigurðsson í prófkjörsbaráttu hans fyrir síðustu kosningar til Alþingis. DV greindi frá því á miðvikudaginn að Björgvin hafi fengið 300 þúsund krónur frá félaginu en Sigurður G. Guðjónsson bar það til baka síðar um daginn. Í dag birti DV hins vegar frétt um það að sannreynt hafi verið að reikningurinn hafi verið greiddur.

Björgvin G. fékk víst styrk frá Baugi

Björgvin G. Sigurðsson þingmaður Samfylkingarinnar fékk 300 þúsund krónur í styrk frá Baugi vegna þáttöku í prófkjöri árið 2007. DV hafði greint frá þessu á miðvikudaginn en Sigurður G. Guðjónsson lögmaður sem var kosningastjóri Björgvins á sínum tíma hafði samband við blaðið og þvertók fyrir að Björgvin hefði þegið styrk frá Baugi. DV birtir hins vegar í dag frétt um að blaðið hafi nú sannreynt að styrkurinn hafi verið greiddur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×