Innlent

Þingmenn VG hlutu ekki styrki í prófkjörum

Enginn þingmaður VG né aðrir sem tóku þátt í prófkjörinu hlutu styrki til að kosta prófkjörsbaráttuna enda stríðir það gegn reglum flokksins. Eini útlagði kostnaður þeirra sem háðu prófkjörið var vegna heimasíðuuppsetningar, kökubaksturs og fleira í þeim dúr þannig að um óverulegar fjárhæðir er að ræða. Þetta segir í fréttatilkynningu sem Vinstri hreyfingin grænt framboð sendi frá sér í kvöld vegna fréttar á Stöð 2.

„Einstaklingum í prófkjöri fyrir VG er ekki heimilt að auglýsa út á við og prófkjörið er háð innan flokksins. Kynning á frambjóðendum fór fram á sameiginlegum fundum og í sameiginlegum bæklingum sem var gefinn út af flokknum. Í fréttinni var sagt fá því að enginn þingmaður sem svaraði spurningum fréttakonunnar, Telmu Tómasson, hefði svarað því hvort hann hafi þegið styrk hærri en hálfa milljón fyrir prófkjörið. Það á því ekki við í tilfelli þingmanna VG," segir í tilkynningu frá VG.


Tengdar fréttir

Stórfyrirtæki styrktu frambjóðendur um milljónir króna

Stórfyrirtæki á borð við Baug og FL Group styrktu frambjóðendur í prófkjörum stjórnmálaflokkanna árið 2006 um milljónir króna, samkvæmt heimildum fréttastofu. Einstakir frambjóðendur þáðu allt að tvær milljónir í styrk. Helmingur þingmanna hefur ekki vilja gefa upplýsingar um fjármögnun prófkjörsbaráttunnar fyrir síðustu þingkosningar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×