Viðskipti innlent

Refresco á sölulista Stoða í fjóra mánuði

Gluggað í reikningana. Jón Ásgeir Jóhannesson og Jón Sigurðsson glugga í reikninga Stoða á uppgjörsfundi. Drykkjarvöruframleiðandinn Refresco er meðal eigna félagsins sem ekki eru skráðar á markað. Markaðurinn/Anton
Gluggað í reikningana. Jón Ásgeir Jóhannesson og Jón Sigurðsson glugga í reikninga Stoða á uppgjörsfundi. Drykkjarvöruframleiðandinn Refresco er meðal eigna félagsins sem ekki eru skráðar á markað. Markaðurinn/Anton

„Hlutur Stoða í Refresco hefur verið í söluferli í fjóra mánuði, frá því áður en bankarnir hrundu,“ segir Júlíus Þorfinnsson, talsmaður Stoða, áður FL Group.

Hann segir að samið hafi verið við fjárfestingarbankann Rothchild um að annast sölu á hlutnum. „Við vonumst til þess að samningar um sölu á 49 prósenta eignarhlut okkar í Refresco náist á næstunni.“

Þá sé ljóst að hrun íslensku bankanna og erfið staða Stoða hafi haft slæm áhrif á rekstur Refresco. „Því er brýnt að selja áður en skaðinn verður meiri,“ segir Júlíus.

Hann bætir því við að kaupverðið á 49 prósenta hlut Stoða á sínum tíma hafi numið um 5,2 milljörðum króna, vorið 2006. Samkvæmt frétt Vísis nam kaupverðið 461 milljón evra, en þá voru skuldir teknar með og fleira.

Hlutur Stoða er nú geymdur í félagi sem skráð er í Hollandi og heitir Ferskur Holding 2 B.V. Eigendur félagsins eru Stoðir, Vífilfell og Kaupþing. Félögin eiga saman 2.680.000 hluti í Refresco, eða um 80 prósent af heildinni. Vífilfell hefur ekki í hyggju að selja, samkvæmt heimildum Markaðarins. Ekki hefur náðst í Steinar Guðgeirsson, formann skilanefndar Kaupþings.

Samkvæmt síðustu ársskýrslu Refresco námu eignir félagsins ríflega 611 milljónum evra. Þá námu skuldir félagsins ríflega 367 milljónum evra.

Stærstur hluti skuldanna kom til vegna sambankaláns sem var tekið um það leyti sem FL Group keypti í félaginu. Það nam 260 milljónum evra og var tekið undir forystu FIH bankans, sem var í eigu Kaupþings.

Stoðir eru enn í greiðslustöðvun og verða til 20. janúar. Félagið var stærsti eigandi Glitnis.

Tilraunir félagsins til að selja Tryggingamiðstöðina (TM) fóru út um þúfur þegar veðhafinn, Landsbankinn, neitaði að ganga til samninga við Kaldbak. „Það kom okkur satt best að segja á óvart enda samþykkti stjórn Stoða einfaldlega hærra tilboðið af tveimur tilboðum sem höfðu borist,“ segir Júlíus. „Eftir sem áður er það vilji Stoða að selja TM, þetta er okkar stærsta eign og sala hennar myndi létta verulega á okkur,“ bætir hann við. „Vonandi gengur sala TM eftir sem fyrst í góðu samkomulagi við bankann.“ Stoðir eiga líka hlut í Landic Property, Royal Unibrew og Bayrock Group.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×