Lífið

Requiem Mozarts á miðnætti

Laust eftir miðnætti aðfaranótt 5. desember næstkomandi flytur Óperukórinn í Reykjavík ásamt sinfoníuhljómsveit og einsöngvurum Requiem Mozarts í Langholtskirkju.

Þessi miðnæturflutningur Óperukórsins er orðinn árviss viðburður. Ástæða þessa sérstæða tónleikatíma er sú að verkið er flutt á dánarstundu tónskáldsins, Mozarts, sem lést laust eftir miðnætti aðfararnótt 5. des. 1791, aðeins 35 ára að aldri. Vitandi að hverju stefndi, lagði hann síðustu krafta sína í að reyna að ljúka tónsmíðinni. Það tókst ekki, og eru því lokakaflar verksins samdir af nemanda hans Syßmaer.

Tónleikum Óperukórsins mun ljúka á síðustu tónunum sem Mozart samdi og skráði. Slökkt er á ljósum og tónlistin stöðvuð á þeim stað þar sem talið er að tónskáldið hafi endað skrif sín, og sameinast í þögn í virðingarskyni við listamanninn.

Þetta er í fjórða sinn sem kórinn flytur Requiem Mozarts. Óperukórinn er svo vitað sé eini kórinn í heiminum sem flytur Sálumessuna á dánartíma tónskáldsins og það hefur vakið heilmikla athygli. Í fyrra var fullt út úr dyrum á tónleikana, og komust færri að en vildu. Miða er meðal annars hægt að nálgast á miða.is og í síma 552 7366.

Myndir af æfingu á verkinu má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×