Viðskipti erlent

Átak til að fá fólkið aftur til Póllands

Pólskir farandverkamenn vinna við íslenskar byggingar. Markaðurinn/Vilhelm
Pólskir farandverkamenn vinna við íslenskar byggingar. Markaðurinn/Vilhelm

Stjórnvöld í Póllandi hafa hrundið af stað átaki til að fá fólk sem farið hefur til starfa erlendis, að snúa aftur heim.

Stjórnvöld þar eystra hafa látið útbúa bækling sem til stendur að dreifa í Bretlandi.

Fram kemur í breska blaðinu Independent að pólsk stjórnvöld óttist vinnuaflsskort þar í landi vegna mikils uppgangs.

Talið er að um 200 þúsund manns, umfram þá sem nú starfa í Póllandi, þurfi til þess að ljúka smíði íþróttamannvirkja sem eiga að vera tilbúin fyrir Evrópukeppnina í knattspyrnu árið 2012.

Haft er eftir Jacek Winnicki, pólskum lögmanni sem búsettur er í Lundúnum, að auglýsingabæklingar hafi tæplega afgerandi áhrif á fólk. „Vinnan er einungis ein af mörgum ástæðum fyrir því að fólk ákveður að flytja úr landi.“

Fram kemur í danska viðskiptablaðinu Börsen að flykkist Pólverjar heim á leið geti það kostað danska þjóðarbúið milljarða danskra króna. Hins vegar fjölgar pólskum starfsmönnum enn í Danmörku.

Fram hefur komið að vegna gengisfalls krónunnar og betra ástands heima fyrir hafi pólskir verkamenn þegar farið heim héðan, auk þess sem margir íhugi mjög stöðu sína. - ikh





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×