Lífið

Íslandsvinur kannast ekkert við framhjáhald

Kokkurinn og Íslandsvinurinn Gordon Ramsey þvertekur fyrir það að hann hafi haldið framhjá konunni sinni. Rithöfundurinn Sara Symonds hélt því í síðustu viku fram að hún hafi haldið við Ramsey í sjö heil ár.

Symonds er líka nýbúin að gefa út bókina „Having an Affair: A Handbook for the Other Woman", þar sem hún upplýsir um framhjáhaldið.

Gordon Ramsey er giftur og fjögurra barna faðir. Hann svaraði ásökunum hinnar meintu ástkonu ekki í tæpa viku, en nú á föstudaginn var hann gestur í sjónvarpsþætti og nýtti tækifærið til að tjá sig um sögusagnirnar.

„Við fengum sent nýtt rúm um daginn. Ljósmyndararnir fyrir utan húsið hafa væntanlega haldið að það væri búið að senda mig niður í kjallara að sofa," sagði Ramsey og hló. Hann benti á að mamma sín væri í áhorfendahópnum og sagðist því þurfa að passa sig á blótsyrðunum. „En þetta er algjört kjaftæði. Andskotinn hafi það, ég hef ekki gert neitt svona."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×