Viðskipti erlent

Ryanair skoðar aftur yfirtöku á Aer Lingus

Ein af vélum Ryanair.
Ein af vélum Ryanair. Mynd/AFP

Stjórnendur írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair áforma að leggja fram tilboð í landa þeirra, Aer Lingus. Verði tilboðið að veruleika er þetta í annað sinn á tveimur árum sem Ryanair reynir við Aer Lingus en það lagði fram yfirtökutilboð í flugfélagið í kringum áramótin 2006.

Miðað við tilboðið nemur markaðsverðmæti Aer Lingus 748 milljónir evra. Það er um helmingi lægra en fyrir tveimur árum.Verðmatið er engu að síður fjórðungi yfir lokaverði bréfa í Aer Lingus á föstudag.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kom í veg fyrir kaupin á sínum tíma en niðurstaða stjórnarinnar var sú að með samruna flugfélaganna myndu þau stjórna áttatíu prósentum af öllu flugi til og frá Dublin. Slíkt bryti í bága við samkeppnislög.

Michael O'Leary, forstjóri Ryanair, segir í samtali við breska ríkisútvarpið í dag aðstæður í efnahagslífinu hafa breyst mjög til hins verra síðan fyrir tveimur árum. Sé útlit fyrir að Aer Lingus verði undir í baráttunni verði ekki gert til að bjarga því.

Þá sé ekki stefnan að sameina félögin að öllu leyti. Vélar þeirra muni til dæmi fljúga undir sömu merkjum og nú, að hans sögn.









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×