Innlent

Hæstiréttur staðfesti einangrunarvist

Andri Ólafsson skrifar
Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Einar Jökull Einarsson skuli sitja í einangrun til 1. nóvember næstkomandi en verjandi hans hafði kært úrskurðinn.

Einar er grunaður um að vera annar höfuðpauranna í Fáskrúðsfjarðarmálinu svokallað sem upp komst í síðasta mánuði. Hann er sá eini af þeim sem í gæsluvarðhaldi sitja sem enn er gert að dúsa í einangrun.

Einar Jökull hefur verið í einangrun í næstum fimm vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×