Tíska og hönnun

Kjólarnir á Óskarnum

Penelope Cruz þótti bera af í glæsilegum fölbleikum kjól frá Versace. Penelope var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir aðalhlutverk sitt í kvikmyndinni Volver.
Penelope Cruz þótti bera af í glæsilegum fölbleikum kjól frá Versace. Penelope var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir aðalhlutverk sitt í kvikmyndinni Volver. MYND/AP
Það var mikið um dýrðir í gærkvöld þegar Óskarsverðlaunin voru afhent. Eins og alltaf skörtuðu stjörnurnar sínu fínasta og voru kjólarnir hver öðrum glæsilegri þó aðrir minna glæsilegir leyndust inn á milli. Þeir litir sem voru áberandi á rauða dreglinum voru ljósir náttúrulegir litir og oft málmlitaðir.

Silfraður var gegnum gangandi í kjólavali stjarnanna en einnig mátti sjá kopar- og gulllita kjóla. Þrátt fyrir það var allt litrófið ráðandi í kjólavalinu en klæðnaður karlanna einskoraðist nær einungis við svart og hvítt eins og venja er.

Einfaldleikinn virtist ráðandi í vali Hollywood stjarnanna á skartgripum þetta árið. Voru stjörnurnar með einfalda skartgripi sem tóku ekki athyglina frá kjólum sjálfum. Það virtist því vera náttúrulegur einfaldleiki sem réði úrslitum í klæðavalinu þetta árið.

Jennifer LopezMYND/Getty Images
Jennifer Lopez skartaði sérlega glæsilegum kjól frá Marchesa en hann minnir um margt á tíma rómverja. Bak kjólsins vakti sérstaka athygli.

Eva GreenMYND/AP
Bond stúlkan, Eva Green, þótti stórglæsileg í gráleitum síðkjól. Hún leyfði kjólnum að njóta sín þar sem hún var einungis með hring sér á hönd og lítið áberandi eyrnalokka.

Gwyneth PalthrowMYND/AP
Gwyneth Palthrow var afar glæsileg í fölleitum koparlitum kjól frá Zac Posen. Var hún einnig með samskonar silfurlituð armbönd á hvorri hönd. Gwyneth var ekki tilnefnd til verðlauna þetta árið en hún hlaut Óskarinn fyrir besta aðalhlutverk árið 1998 fyrir kvikmyndina Shakespeare in Love en þá var hún aðeins 26 ára gömul.

Cate BlanchettMYND/AP
Cate Blanchett var íklædd silfruðum glitrandi kjól frá Armani Privé sem hún bar vel, enda glæsileg kona. Cate fékk Óskarinn fyrir tveimur árum sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt sem Katharine Hepburn í kvikmyndinni The Aviator. Hún hafði áður verið tilnefnd fyrir aðalhlutverk árið 1998, þá í hlutverki Elísabetar Bretlandsdrottningar í kvikmyndinni Elizabeth, en laut í lægri hlut fyrir Gwyneth Palthrow.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×